Borgarstjóri leitar að viðburðafulltrúa
Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara leitar nú að viðburðafulltrúa. Skrifstofa samskipta og viðburða var lögð niður af nýrri borgarstjórn í hópuppsögnum í júní.
Ný borgarstjórn Hildar Björnsdóttur hefur gert stórtækar breytingar eftir að hún hóf störf í júní síðastliðnum og hafa hópuppsagnir orðið á ýmsum sviðum hjá Reykjavíkurborg.
Undanfarið hefur skrifstofa borgarstjóra og borgarritara auglýst eftir viðburðafulltrúa en umsóknarfrestur rann út 20. ágúst. Staðan var auglýst inn á Alfreð. Um það segir: „Viðburðafulltrúi hefur umsjón með opinberum móttökum í Ráðhúsi og Höfða fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara ásamt því að sjá um móttökur og aðra viðburði skrifstofunnar.
Skrifstofan þjónustar embætti borgarstjóra og borgarritara, undirbýr samræmda stefnumörkun Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á samhæfðri stefnumörkun í samskipta- og upplýsingamálum.“
Skrifstofa samskipta og viðburða lögð niður
Undir lok júnímánaðar var skrifstofa samskipta og viðburða lögð niður sem og mannréttindaskrifstofa. Hafði hópuppsögnin áhrif á 27 stöðugildi af 42 á skrifstofunum sem um ræddi en í heildina voru 18 störf lögð niður.
„Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar,“ sagði …