Hin árlega skötumessa verður haldin hátíðleg í grunnskólanum í Garði miðvikudaginn 15. júlí. Er þetta 18. árið í röð sem hátíðin er haldin, en á þeim árum hafa samtals safnast hátt í 200 milljónir króna til styrktar ýmsum góðgerðarmálum.
Ásmundur Friðriksson er einn skipuleggjenda veislunnar en hann segir að hún verði með svipuðu sniði og undanfarin ár.
„Þetta hefur alltaf gengið rosalega vel en í ár verða aðaltónlistamennirnir bræðurnir Baldur og Júlíus Guðmundssynir, synir Rúnars Júlíussonar. Ræðumaður kvöldsins verður svo Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Við vonum því að fólk sjái sér fært að gefa fótboltanum frí og mæti með okkur,“ segir Ásmundur í samtali við Morgunblaðið.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.