Viðskiptavinir bókasafnsins í Hafnarfirði verða ekki bókalausir þó að safnið loki í um tvo mánuði vegna flutninga. Hver og einn má taka sér að láni allt að þrjátíu bækur og hafa hjá sér í sumar. Þetta gæti létt verulega undir segir Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður safnsins.
„Þann 18. maí þá munum við loka þessu safni hérna og byrja flutning og við erum reyndar búin að vera að undirbúa okkur í tvö ár fyrir flutninginn og við áætlum að vonandi getum við opnað í júlí,“ segir Sigrún.
Bókasafnið í Hafnarfirði flytur í verslunarmiðstöðina Fjörð á 2. hæð í um 1700 fermetra rými. Flutningarnir verða umfangsmiklir og safnið hefur því beðið viðskiptavini um dýrmæta aðstoð.
„Að taka allt að þrjátíu gögn, hvort sem það eru bækur, spil eða annað og þarf ekki að skila fyrr en 1. ágúst og engar sektir.“
Sjálfsagt að hjálpa
Margir voru á bókasafninu þegar fréttamaður kom á staðinn. Þar á meðal Hrefna Huld Helgadóttir sem ákvað að bregðast við kalli safnsins.
„Já ég sá einhverja auglýsingu á netinu í gær og bara ákvað að skella mér hérna í heimsókn.“
Þannig að þú vildir bara létta undir með safninu og taka svolítið af bókum til að hjálpa til?
„Já það er sjálfsagt að hjálpa.“
Hildur Ben Unnardóttir, eiginkona Hrefnu, sagðist ekki ætla að lesa mikið í sumar. Hún hefði komið með á safnið til að aðstoða konu sína við að halda á öllum bókunum.
„Jú þú þarft að lesa þessa hérna, hún er mjög áhugaverð,“ segir Hrefna.
Þannig að þú ætlar að reyna að láta hana lesa eitthvað af þessu?
„Já já að sjálfsögðu.“