Veðrið lék við hátíðargesti á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar blysin voru tendruð í Herjólfsdal á sunnudagskvöld.
Tendrun blysanna að loknum brekkusöng er einn af hápunktum hátíðarinnar. Blysunum fjölgar ár frá ári og er eitt blys tendrað fyrir hvert ár sem hátíðin er haldin.
Ragnar Santos, myndatökumaður RÚV, náði þessum glæsilegu drónaskotum þegar blysin voru tendruð og rauður bjarmi blysanna lýsti upp Herjólfsdal.