Vísindamenn reikna með að brotlending hluta eldflaugar SpaceX í morgun skilji eftir sig fjögurra metra djúpan gíg á tunglinu. Beðið er eftir myndefni til að hægt sé að staðfesta áreksturinn.
Gert er ráð fyrir að hluti eldflaugarinnar, sem er á stærð við rútu og vegur fjögur tonn, hafi skollið á tunglinu á nærri átta þúsund og sjö hundruð kílómetra hraða á klukkustund.
Geimruslið var hluti af SpaceX Falcon 9 eldflaug sem flutti ómannað tunglfar út í geim í fyrra. Eldflaugarhlutum sem þessum er sleppt í þrepum eftir því sem líður á geimferðina. Þeir falla þá yfirleitt í átt til jarðar og í hafið eða brenna upp í gufuhvolfinu.
Vegna þess að geimskotið þurfti meiri kraft en gengur og gerist endaði þessi hluti flaugarinnar í geimnum, í stað þess að hrapa til jarðar. Þar hefur hann reikað stefnulaust um, innan um annað geimrusl þangað til nú.
Brotlendingin náðist ekki í beinni útsendingu
Talið er að eldflaugarhlutinn hafi brotlent nálægt Einstein-gígnum. Einstein-gígurinn er á þeim hluta tunglsins sem er upplýstur af sólinni og sést frá jörðu — á gagnstæðri hlið miðað við lendingarstað Apollo 11, þar sem Neil Armstrong og Buzz Aldrin stigu fyrstir manna fæti á tunglið.
Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA telja að áreksturinn skilji eftir sig nýjan gíg sem verður um átján metrar í þvermál og fjögurra metra djúpur.
Engin hætta stafar af árekstrinum á jörðu niðri. Hann verður endanlega staðfestur þegar vísindamenn hafa greint myndefni af tunglinu.
Ekkert geimfaranna á braut um tunglið var staðsett þannig að það náði upptöku af brotlendingunni og því verður fyrsta verkefni sérfræðinga að bera saman myndir af yfirborði tunglsins fyrir og eftir áreksturinn til að finna gíginn.