Bestu hlut­verk Sams Neill: And­kristur, forn­leifa­fræðingur og menn á barmi sturlunar - Vísir

Bestu hlut­verk Sams Neill: And­kristur, forn­leifa­fræðingur og menn á barmi sturlunar - Vísir

Bestu hlut­verk Sams Neill: And­kristur, forn­leifa­fræðingur og menn á barmi sturlunar - Vísir

Nigel John Dermot Neill fæddist 14. september 1947 á Norður-Írlandi, sonur enskrar móður og nýsjálensks föður, en fjölskyldan flutti til Cristchurch á Nýja-Sjálandi þegar hann var sjö ára gamall. Ári síðar flutti fjölskyldan í Macandrew-flóa og í grunnskólanum þar byrjaði Nigel að kalla sig Sam því honum þótti Nigel-nafnið of kraftlítið. 

Sam lærði heimspeki í háskóla, kynntist þar leiklist og fór að vinna sem leikari eftir útskrift. Fyrsta myndin sem hann lék í var sjónvarpsmyndin The City of No (1971) en hann sló fyrst í gegn í nýsjálensku myndinni Sleeping Dogs (1977) sem fór út fyrir landsteinana. Fljótlega eftir það fór Neill að leika í áströlskum myndum og síðan tók Hollywood við.

Hér að neðan má sjá tíu bestu hlutverk Sam Neill:

The Omen: The Final Conflict (1981)

Neill vakti fyrst athygli á heimsvísu þegar hann lék andkristinn Damien Thorn í þriðju kvikmyndinni í Omen-hrollvekjubálknum, The Omen: The Final Conflict (1981).

Damien Thorn er eitt frægasta illmenni kvikmyndasögunnar.

Kvikmyndin segir frá fullorðnum Damien sem hefur gengist við djöfullegum uppruna sínum og reynir allt hvað hann getur til að koma í veg fyrir endurkomu Krists til jarðarinnar. Brjálæðislegt blikið í augum Neill og hans breiða bros passaði hinum sataníska Damien fullkomlega.

Possession (1981)

Sama ár og Sam Neill sló í gegn sem Damien Thorn lék hann í sálfræðihrollvekjunni Possession eftir pólska leikstjórann Andrzej Żuławski en hún hefur á síðustu áratugum fest sig í sessi sem algjör költklassík.

Sam Neill leikur Mark sem sturlast úr ástarsorg.

Possession fjallar um njósnarann Mark (Neill) sem snýr aftur heim til Vestur-Berlínar og kemst að því að eiginkona hans, Anna (Isabelle Adjani), vill skilnað. Fréttirnar leggjast þungt á Mark sem fer að fylgjast með ferðum eiginkonunnar og uppgötvar fljótlega að það er eitthvað verulega undarlegt.

Kvikmyndin er einna þekktust fyrir brjálæðislegan leik Adjani, þá sérstaklega í senu sem gerist á göngum neðanjarðarlestarstöðvar, en Neill gefur henni ekkert eftir sem ofsafenginn og niðurbrotinn njósnarinn. Eftir að myndin kom út var Neill nálægt því að taka við af Roger Moore sem James Bond en Timothy Dalton varð á endanum fyrir valinu.

Evil Angels (1988)

Ein frægustu réttarhöld í sögu Ástralíu tengdust hjónunum Lindy og Michael Chamberlain sem voru sökuð um að hafa myrt níu vikna gamla dóttur sína, Azariu, sem hvar meðan þau voru í tjaldútilegu í Ayers Rock árið 1980. Lindy hélt því fram að hún hefði séð dingóhund yfirgefa tjaldið þar sem Azaria var sofandi.

Streep og Neill í hlutverkum sínum sem Chamberlain-hjónin.

Leikstjórinn Fred Schepisi leikstýrði kvikmyndinni Evil Angels (eða A Cry in the Dark í Eyjaálfu) um réttarhöldin þar sem áhorfendur fylgjast með Lindy (Meryl Streep) og Michael (Neill) reyna að sýna fram á sakleysi sitt í málinu. Hin fræga lína „A dingo ate my baby“ er rakin til myndarinnar. 

Lindy hlaut lífstíðardóm fyrir hlut sinn í hvarfi Azariu en Michael aðeins átján mánaða dóm. Þau voru síðan bæði hreinsuð af allri ábyrð aðeins nokkrum vikum áður en myndin kom í bíó. Streep var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn sem Lindy en Neill var ekki síðri sem presturinn Michael sem byrjar að glata trú sinni meðan málið gengur yfir.

Dead Calm (1989)

Neill var ansi öflugur á níunda áratugnum og endaði hann með sálfræðitryllinum Dead Calm í leikstjórn Phillip Noyce.

Kidman og Neill sem Ingram-hjónin.

Dead Calm byggir á samnefndri skáldsögu eftir Charles Williams og segir frá sjóforingjanum John (Neill) og eiginkonu hans, Rae Ingram (Nicole Kidman), sem eru að jafna sig á sonarmissi og fara á snekkju út á Kyrrahafið. 

Á siglingunni rekast þau á Hughie Warriner (Billy Zane) sem kemur siglandi til þeirra á lítilli kænu eftir að hafa yfirgefið sökkvandi skip sitt. Ókunnugi maðurinn reynist svo vera úlfur í sauðagæru. Við tekur hrollvekjandi atburðarás.

The Piano (1993)

Neill átti öflugan níunda áratug en lék þó í stærstu myndum sínum á þeim tíunda. Meðal þeirra var sögulegi rómansinn The Piano í leikstjórn Jane Campion sem naut gríðarlegra vinsælda þegar hann kom út, hlaut Gullpálmann árið 1993 og þrenn Óskarsverðlaun árið 1994.

Anna Paquin og Holly Hunter í hlutverkum sínum.

Kvikmyndin gerist á nítjándu öld og segir frá mállausa Skotanum Ödu McGrath (Holly Hunter) sem er send til Nýja-Sjálands með dóttur sinni og píanói til að giftast bóndanum Alisdair Stewart (Neill) en verður fljótt ástfangin af vinnumanninum George (Harvey Keitel).

Karakter Neill er framan af nokkuð hófstilltur og sanngjarn en umbreytist í lokakafla myndarinnar þegar hann kemst að því að eiginkonan eigi í ástarsambandi við annan mann.

Jurassic Park (1993)

Þó Neill hafi leikið fjölmarga frábæra karaktera er hans langþekktasta hlutverk án efa fornleifafræðingurinn Dr. Alan Grant í Júragarðinum eftir Steven Spielberg.

Dr. Alan Grant þarf að bjarga tveimur börnum og sjálfum sér frá risaeðlum.

Raunsæismaðurinn Grant er í byrjun myndar hæðinn nöldurseggur sem þolir ekki börn en þarf síðan að taka á honum stóra sínum þegar allt fer í skrúfuna í garðinum. Neill sýndi í myndinni að hann hefði vel getað leikið Bond og sneri svo aftur sem Grant í Jurassic Park III (2001) og Jurassic World: Dominion (2022).

In the Mouth of Madness (1994)

Ær og kýr Neill voru að leika menn á barmi sturlunar og hann gerði það sjaldan jafnvel og í Lovecraftísku hrollvekjunni In the Mouth of Madness eftir John Carpenter.

John Trent lendir í ýmiss konar vandræðum í myndinni.

Neill leikur í myndinni tryggingaeftirlitsmanninn John Trent sem er sannfærður um að allsherjarmóðursýki vegna nýútkominnar hryllingsskáldsögu sé bara markaðsbragð. Trent fer að rannsaka málið í bænum Hobb's End þar sem söguþráður hrollvekjunnar virðist vera að taka á sig mynd.

Neill sýnir allan tilfinningaskalann í myndinni, allt frá því að vera yfirvegaður yfir í að vera gjörsamlega snældubilaður.

Event Horizon (1997)

Framleiðsla vísindahrollvekjunnar Event Horizon í leikstjórn Paul Anderson einkenndist af mikilli stúdíóíhlutun og ýmsum öðrum vandræðum. Þegar myndin kom loksins út var myndin algjört flopp í bíóhúsum. Hún naut hins vegar mikilla vinsælda á vídjóleigum og hefur síðan fest sig í sessi sem költklassík.

Sam Neill sem Dr. William Weir.

Event Horizon fjallar um könnunarleiðangur geimáhafnar sem á að rannsaka geimskip sem hafði horfið sjö árum fyrr en birtist skyndilega á ný. Neill leikur skipahönnuðinn Dr. William Weir sem byrjar myndina sem algjör nörd en umbreytist í klikkaðan vísindamann eftir því sem á líður. 

„Þangað sem við erum að fara þurfum við ekki augu til að sjá,“ segir Weir í lykilsenu undir lok myndarinnar.

Peaky Blinders (2013-14)

Neill lék í meira en níutíu kvikmyndum á rúmlega fimmtíu ára leikferli sínum en einnig í fjölda sjónvarpsþátta. 

Sam Neill sem lögreglustjórinn Campbell.

Efstir á blaði þar eru glæpaþættirnir Peaky Blinders sem segja frá ævintýrum Peaky Blinders-gengisins í Birmingham í kjölfar Fyrri heimsstyrjaldarinnar en forystusauður þess er hinn ósvífni og sjarmerandi Tommy Shelby (Cillian Murphy). 

Serían gekk í sex seríur og endaði með kvikmyndinni Peaky Blinders: The Immortal Man en í fyrstu tveimur seríunum fer Sam Neill með hlutverk lögreglustjórans Maj Campbell sem er helsti andstæðingur Shelby og félaga. Kemistría Murphy og Neill var sérlega góð og lögreglustjórinn verðugur andstæðingur glæpónanna.

Hunt for the Wilderpeople (2016)

Neill lék allt fram til dauðadags og eru síðustu myndir hans enn óútkomnar. Eitt besta hlutverk hans á seinni stigum ferilsins er úrilli og önugi stjúpfrændinn Hector í nýsjálensku ævintýrakómedíunni Hunt for the Wilderpeople eftir Taika Waititi.

Neill og Dennison í hlutverkum sínum.

Kvikmyndin segir frá vandræðagemsanum Ricky Baker (Julian Dennison) sem flakkar á milli fósturheimila og endar í umsjá hinnar góðhjörtuðu Bellu og hins fúla Hectors. Þegar áfall dynur á heimilinu þarf Ricky að fara til annarrar fósturfjölskyldu en ákveður frekar að flýja með Hector undan yfirvöldum  inn í óbyggðir Nýja-Sjálands.

#andkristur #bestu #hlutverk #neill #sams


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262908816d/bestu-hlut-verk-sams-neill-and-kristur-forn-leifa-fraedingur-og-menn-a-barmi-sturlunar

📰 Aðrar fréttir

Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
📅 12.10.2026 👁️ 1
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabit...
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þæt...
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
📅 12.10.2026 👁️ 1
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
The 51-year-old actor and comedian denies charges of rape and sexual assault against six women.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
📅 12.10.2026 👁️ 1
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri he...
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka 
lækna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna - Vísir
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks s...
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
📅 12.10.2026 👁️ 1
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með...
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær. Fjöldi fólks kom saman til að...
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægi...
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
📅 12.10.2026 👁️ 1
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fék...
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
📅 12.10.2026 👁️ 1
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
Residents and holidaymakers across the Canary Islands face changes to supermarket, shopping centre and public service opening hours today, Monday 12th...
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 2
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 2
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 2
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 3
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 3
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 2
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 3
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 3
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 3
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
📅 11.10.2026 👁️ 2
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
📅 11.10.2026 👁️ 2
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
Close to record-breaking warm nights are possible this week as warmer air heads for the UK.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...