Þetta er í sjöunda skipti sem hlaupið fer fram í Heiðmörk. Hlaupið gengur út á að ljúka 6,7 kílómetra hring á einni klukkustund. Sá sem hleypur flesta hringi og er eini sem klárar hlaupið stendur uppi sem sigurvegari.
Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic verða á sínum stað, ræða við keppendur og rýna í stöðuna með góðum gestum. Þá er einnig hægt að fylgjast með í vaktinni hér fyrir neðan.
Þórdís Ólöf Jónsdóttir sigraði síðasta Bakgarðshlaup sem fór fram í Öskjuhlíð í vor. Hún fór 44 hringi sem gera 294,8 kílómetra. Þorleifur Þorleifsson á enn Íslandsmeistaratitilinn en hann fór 62 hringi í október 2024.
Ef vaktin birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna.