Körfuboltaaðdáendur bauluðu á Donald Trump Bandaríkjaforseta í Madison Square Garden í nótt. Honum brá fyrir á stórum skjá þegar þjóðsöngur Bandaríkjanna var sunginn fyrir leik New York Knicks og San Antonio Spurs. Þetta var þriðji leikur liðanna í úrslitaeinvígi þeirra um NBA titilinn.
Fréttamiðlar á borð við BBC, New York Times og CNN segja frá baulinu.
Trump er fyrsti sitjandi forseti Bandaríkjanna til að vera við úrslitakeppnina.
Miðahafar þurftu að bíða klukkustundum saman í röð til þess að komast inn á leikvanginn. Það var vegna mikilla öryggisráðstafana sem fylgdu heimsókn forsetans.