Deilt var á bæjarráðsfundi í Kópavogi á fimmtudag um úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli fatlaðrar stúlku. Foreldrar stúlkunnar höfðu sótt um stuðningsþjónustu fyrir hana hjá bænum. Umsóknin var samþykkt en þegar þeir höfðu beðið í átta mánuði eftir að þjónustan yrði veitt lögðu foreldrarnir fram kæru til nefndarinnar. Var fullyrt í kærunni að foreldrarnir hefðu fengið þau svör, þegar þeir leituðu svara við því hvenær þjónustan myndi hefjast, að málefni fatlaðra barna væru ekki í forgangi hjá bænum.
Bæjarfulltrúar rifust um mál fatlaðrar stúlku - Foreldrarnir sögðust hafa fengið þau svör að fötluð börn væru ekki í forgangi