Atvinnuleysi mældist 5,8 prósent í apríl
Alls voru 13.500 án atvinnu í apríl samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum. Það er sem nemur 5,8 prósenta atvinnuleysi.
Atvinnuleysi minnkaði á milli mánaða í apríl, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands.
Alls voru 13.500 án atvinnu í apríl samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum. Það er sem nemur 5,8 prósenta atvinnuleysi. Hlutfallið hefur lækkað um 0,5 prósentustig frá mars.
Hlutfall starfandi var 75,4 prósent og stóð í stað milli mánaða, en atvinnuþátttaka mældist 80 prósent og dróst saman um 0,5 prósentustig.
Óárstíðaleiðréttar niðurstöður sýna meiri aukningu frá fyrra ári. Samkvæmt mælingu Hagstofunnar var atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 6,6 prósent í apríl, eða um 15.300 manns.
Hlutfall starfandi var 74,2 prósent í apríl og samsvaraði það tæplega 217.200 einstaklingum. Atvinnuþátttaka var 79,4 prósent, sem jafngildir um 232.500 manns á vinnumarkaði.
Í samanburði við apríl í fyrra jókst atvinnuleysi um 2,6 prósentustig. Hlutfall starfandi lækkaði um 3,3 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 1,3 prósentustig.