Atvinnuleysi hefur aukist milli ára en mælingar Hagstofunnar og Vinnumálastofnunar gefa ólíka mynd af því hversu mikil sú aukning er.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 5,8 prósent í apríl, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, sem var birt í morgun. Árinu áður sýndi hún 3,5 prósenta atvinnuleysi. Atvinnuleysið var 4,6 prósent í apríl, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar en var 3,9 prósent árinu áður.
Samkvæmt Hagstofunni hefur atvinnuleysi aukist um rúm tvö prósentustig milli ára en um tæpt eitt prósent samkvæmt Vinnumálastofnun.
Báðar mælingar sýna þó að atvinnuleysi hefur minnkað með hækkandi sól, líkt og oft gerist.
Hagstofan gerir skoðanakönnun til að meta atvinnuleysi en Vinnumálastofnun miðar við fjölda þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá.