Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi

Rannsóknir sýna að árstíðabundin hármissir stafi oftast af næringarskorti fremur en veðurfari. Sérfræðingar á sviði næringar- og húðlækninga benda á að rétt samsett mataræði sé lykilatriði til að styrkja hársekkina innan frá og vinna gegn hárlosi, um þetta má fræðast í indverska Vogue.
Indverskt hár þykir einstaklega fallegt á heimsvísu vegna styrks, þykktar og glans, en leyndarmálið á bak við þessi gæði liggur í erfðum og menningarhefðum.
Indverjar búa yfir sterkum erfðafræðilegum þáttum eins og miklum þéttleika hársekkja sem gefur hárinu náttúrulega fyllingu og styrk. Og svo er mikil menningarhefð að huga vel að hárinu. Djúpstæðar umhirðuhefðir eins og að bera reglulega olíu í hársvörðinn er fastur liður í daglegu lífi sem nærir hárið frá rótum. Þá telja þeir mikilvægt að lágmarka alla efnameðhöndlun. Því minni notkun á sterkum gerviefnum og litun hjálpar til við að halda hárinu heilbrigðu og löngu til frambúðar.
Árstíðabundið hárlos
Árstíðabundið hárlos, sem margir upplifa sem tímabundið ástand tengt veðurfari, tengist eins og fyrr segir frekar næringarskorti og lífsstílsháttum samkvæmt nýjustu samantekt sérfræðinga. Algengustu orsakaþættirnir eru skortur á járni, próteini, sem og mikilvægum vítamínum og steinefnum á borð við D-vítamín, B12, sink og omega-3 fitusýrum.
Að sögn Abhishree Goyal, næringarfræðings, geta strangir megrunarkúrar, óreglulegur matartími og ofneysla kaffis truflað vaxtarskeið hársins og valdið því að hársekkir fari í dvala. Innan Ayurveda fræðanna er þessu jafnframt lýst sem ójafnvægi í hitabúskap líkamans, þar sem bólguvaldandi fæða og streita flýta fyrir þynningu og gránun hársins.
Húðlæknirinn dr. Kiran Sethi leggur áherslu á að fólk leiti lausna í eldhúsinu fremur en að treysta eingöngu á dýr hárserum. Þá tiltaka sérfræðingar átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi:
- Amla (indversk gajaber): Rík af C-vítamíni og andoxunarefnum sem bæta járnupptöku.
- Spínat: Uppspretta járns og fólats sem tryggir súrefnisflæði til hársvarðarins.
- Spíraðar moong-baunir: Innihalda jurtaprótein og bíótín sem styrkja hárþræði frá rót.
- Chía-fræ: Stútfull af omega-3 fitusýrum sem draga úr bólgu og raka hársvörðinn.
- Valhnetur: Veita nauðsynleg steinefni og fitusýrur sem viðhalda heilbrigði hársekkja.
- Kotasæla (paneer): Hágæða prótein og kalsíum sem styðja við keratínframleiðslu.
- Lax: Öflug samsetning af D-vítamíni, próteini og omega-3 sem eykur þéttleika hárins.
- Karrýlaufduft: Hefðbundið tól ríkt af A, C og E-vítamínum sem styrkir hársekki.
Samhliða bættu mataræði ráðleggja sérfræðingar reglulega streitustjórnun, góðan svefn, markvissa umhirðu hársvarðarins og reglulega inntöku D-vítamíns til að tryggja hámarksárangur.