Tæknirisinn Apple hefur höfðað mál á hendur gervigreindarfyrirtækinu OpenAI fyrir tilraun til þess að stela viðskiptaleyndarmálum. Apple fullyrðir að OpenAI hafi ráðið til sín starfsmenn frá Apple og fengið þá til að ljóstra upp um trúnaðargögn. Gögnin hafi innihaldið upplýsingar um tækni og vörur Apple sem ekki er búið að setja á markað.
Talsmaður Apple segir við BBC að málshöfðunin byggi á marktækum sönnunargögnum.
„Við höfum engan áhuga á viðskiptaleyndarmálum annarra fyrirtækja,“ segir talsmaður OpenAI aftur á móti við erlenda fjölmiðla. Kæran sé nú til skoðunar innan fyrirtækisins.
Spenna milli fyrirtækjanna jókst í fyrra
Samband tæknifyrirtækjanna hefur verið talið nokkuð gott á síðustu árum. Þau gerðu með sér samstarfssamning 2024 sem fólst í því að spjallmenni OpenAI, ChatGPT, yrði hluti af stýrikerfum í símum, spjaldtölvum og tölvum Apple.
Í síðasta mánuði kynnti Apple uppfærða útgáfu af stafræna aðstoðarmanninum Siri. Þá kom í ljós að gervigreindartækni Siri byggði ekki á ChatGPT heldur á gervigreindarlíkani Google sem nefnist Gemini.
Spenna milli fyrirtækjanna hafði engu að síður byrjað að gerjast í fyrra eftir að OpenAI keypti sprotafyrirtæki sem Jony Ive stofnaði. Hann var lengi einn af aðalhönnuðum Apple. Í kæru Apple er OpenAI sakað um að komast yfir viðskiptaleyndarmál um vélbúnað með kaupunum.
Sagður nýta atvinnuviðtöl til að ná í viðkvæmar upplýsingar
Þá er Tang Yew Tan, sem var áður einn af framkvæmdastjórum Apple en starfar nú sem yfirmaður vélbúnaðardeildar OpenAI, sakaður um að nýta atvinnuviðtöl til þess að fá fólk sem enn starfar hjá Apple til að ljóstra upp um viðskiptaleyndarmál í viðtölunum. Hann hafi einnig beðið umsækjendur um að taka með sér hluti sem enn eru í vinnslu innan Apple og kynna þá í viðtölunum.
Apple fer fram á skaðabætur og dómsúrskurð sem bannar OpenAI bæði að nota og hafa í eigu sinni viðskiptaleyndarmál.