Brynjar Karl, þjálfari íþróttafélagsins Aþenu í Efra Breiðholti, heldur áfram með óvægin skrif um samskipti hans og félagsins við borgaryfirvöld. Nú hefur hann birt nýja færslu þar sem hann hrósar sjálfboðaliðum úr Miðflokknum fyrir að mæta og hjálpa til við framkvæmdir sem eru nauðsynlegar fyrir starfsemi félagsins.
„Andskotans útlendingahatarar í Miðflokknum mætt að múra og grunna veggina fyrir nýbúakrakkana mína. WTF?“ skrifar Brynjar.
Brynjar vísar á kaldhæðinn hátt í þá gagnrýni sem Miðflokkurinn hefur oft sætt í umræðu um innflytjendamál, en Brynjar segir reynslu sína af flokknum vera allt aðra.
Kallaði eftir sjálfboðaliðum
Pistill Brynjars kemur í framhaldi af færslu Brynjars fyrr í vikunni þar sem hann óskaði eftir iðnaðarmönnum og efni til að klára kjallara sem Aþena hyggst nýta undir félagsstarf, heimanám, skapgerðarþjálfun og aðstöðu fyrir börn og ungmenni í hverfinu.
Hann sagði markmiðið vera að gera allt tilbúið svo Reykjavíkurborg gæti ekki lengur tafið endanlegt samþykki fyrir notkun húsnæðisins.
Samkvæmt Brynjari mættu Páll Edwald og fleiri úr Miðflokknum á svæðið til að hjálpa við múr- og málningarvinnu.
„Þetta er eitthvað sem við í Aþenu höfum aldrei upplifað áður. Pólitík sem styður í verki olnbogabarn 111 RVK,“ skrifar hann.
Skorar á aðra flokka að mæta
Í færslunni skorar Brynjar svo á aðra stjórnmálaflokka að leggja verkefninu lið í verki, sérstaklega þá sem tali mikið fyrir inngildingu og fjölmenningu en hann segir borgarstjórnarflokkana hafa beinlínis staðið í vegi fyrir að félagið, sem er að mestu samansett af börnum og unglingum af erlendum uppruna, geti starfað eðlilega. Ekki bara hafi borgin neitað að aðstoða heldur beinlínis lagt steina í götu félagsins.
„Það væri sérstaklega gaman að sjá flokka sem tala hátt um inngildingu nýbúa og eflingu fjölmenningar í sínum stefnuskrám mæta líka á svæðið og taka þátt í verkefninu,“ skrifar hann áður en hann bætir við: „Talk the talk and walk the walk.“
