Nokkur andmæli hafa verið gerð við drög að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir. Frumvarpið gengur út á hertari reglur um nikótínvörur til að mynda rafrettur og nikótínpúða. Í athugasemdum er meðal annars því andmælt að til standi að veita heilbrigðisráðherra vald til að banna bragðbætta nikótínpúða. Vilja þeir sem skilað hafa inn umsögnum meina að í frumvarpsdrögunum sé gengið of langt við að skerða valfrelsi fullorðins fólks.Frumvarpsdrögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Andmæla áformum um að herða reglur um nikótínvörur - „Ég er fullorðinn einstaklingur“