Árni Tómas Ragnarsson fæddist í Reykjavík 19. janúar 1950. Hann lést 27. apríl 2026.
Foreldrar hans voru Ragnar Tómas Árnason, útvarpsþulur og verslunarmaður, f. 13. mars 1917, d. 3. mars 1984, og Jónína Vigdís Kristjánsdóttir Schram læknaritari, f. 14. júní 1923, d. 28. mars 2007.
Árni var Vesturbæingur og KR-ingur í húð og hár. Hann fæddist í húsi afa síns og ömmu, Láru og Kristjáns Schram, á Vesturgötunni og ólst upp í nánum tengslum við stórfjölskyldu sína. Þegar hann var átta ára flutti fjölskyldan að Jörva í útjaðri bæjarins, en síðar festi hann kaup á húsi afa síns og ömmu við Vesturgötuna og bjó þar til dauðadags.
Systkini Árna eru Kristján Tómas, f. 1943, Lára Margrét, f. 1947, d. 2012, Ásta Kristrún, f. 1952, og Hallgrímur Tómas, f. 1961.
Árni lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969 og kandídatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1976. Hann stundaði sérnám við Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og víðar í Svíþjóð og fékk sérfræðileyfi í gigtlækningum 1982.
Á námsárunum og fyrstu starfsárum sínum vann Árni á flestum sjúkrahúsum Reykjavíkur og var héraðslæknir á Siglufirði og í Stykkishólmi. Fyrst eftir heimkomuna 1982 starfaði hann sem aðstoðarlæknir á Landakotsspítala, en varð yfirlæknir Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar árið 1983 og gegndi því starfi í nær þrjátíu ár. Samhliða rak hann eigin lækningastofu í Reykjavík sem sérfræðingur í gigtarsjúkdómum. Þá starfaði hann einnig um tíma sem sérfræðingur við Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og Central Lasarettet í Växjö í Svíþjóð. Árni var trúnaðarlæknir Landsbanka Íslands, Seðlabanka Íslands, Reiknistofu bankanna og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og sinnti einnig störfum fyrir fleiri fyrirtæki og stofnanir.
Stjórnirnar sem Árni átti sæti í endurspegla fjölbreytt áhugasvið hans. Fyrir utan stjórn Gigtarsjúkdómafélags íslenskra lækna sem hann sat í 1984–1986, var hann í stjórn Styrktarfélags Íslensku óperunnar og Íslensku óperunnar á árunum 1987–1995, Tennissambands Íslands 1987–1988, Richard Wagner-félagsins á Íslandi frá árinu 1995 og Halldór Hansen-sjóðsins sem styrkir unga tónlistarmenn til náms.
Auk lækninga voru menning og listir stærsta ástríða Árna og mótuðu bæði líf hans og persónuleika. Hann var einstaklega menningarsinnaður, afburða vel lesinn og fylgdist af óvenjulegri nákvæmni með því sem gerðist í tónlist, bókmenntum, leikhúsi og óperulífi heimsins. Þekking hans á klassískri tónlist og óperum þótti einstök og leituðu margir til hans eftir fróðleik og leiðsögn. Sérstaklega var hann þekktur fyrir djúpa þekkingu á verkum Wagners og varð einn helsti talsmaður Wagner-tónlistar á Íslandi. Hann sótti margsinnis Wagnerhátíðina í Bayreuth, stofnaði ásamt Selmu þáverandi konu sinni Richard Wagner félag Íslands og ritstýrði Óperublaðinu um árabil. Árni átti meðal annars þátt í því að Niflungahringur Wagners var settur upp á Íslandi árið 2004.
Árni var mikill lestrarhestur og hafði sérstakt dálæti á verkum Halldórs Laxness, Þórbergs Þórðarsonar, Dostojevskís og Gabriel García Márquez.
Árni hafði lifandi áhuga á flestum íþróttum en tennis átti sérstakan stað í hjarta hans. Hann kom að uppbyggingu tennisvalla í Fossvoginum og stundaði tennis af miklum krafti í áratugi.
Árni skrifaði fjölda greina í innlend og erlend læknarit og lét sig samfélagsmál jafnan varða, meðal annars málefni heilbrigðisþjónustu, forvarna, skaðaminnkunar og menningar.
Fyrrverandi eiginkona Árna er Selma Guðmundsdóttir píanóleikari, f. 1950. Eftirlifandi eiginkona hans er Jóhanna Andrea Jónsdóttir foreldra- og uppeldisráðgjafi. Foreldrar hennar eru Jón Lárusson húsasmiður, f. 18. apríl 1950, og Anna Karítas Bjarnadóttir, f. 18. desember 1951, sem er kennari að mennt og gift Þorvaldi Gylfasyni prófessor emeritus, f. 1951.
Dóttir Árna og Jóhönnu er Andrea Elizabeth Gavern Árnadóttir, f. 1999.
Börn Árna og Selmu eru Guðmundur Tómas, f. 1969, d. 1994, Ragnar Tómas, hæstaréttarlögmaður og aðjúnkt við lagadeild HÍ, f. 1970, Kristján Tómas, f. 1978, sérfræðingur í heimilislækningum, og Selma Lára, f. 1993, grafískur hönnuður.
Barnabörn Árna eru Guðmundur Tómas Guðmundsson, Ingimar Tómas Ragnarsson, unnusta hans er Karen Ýr Friðjónsdóttir og eiga þau synina Baltasar Tómas og Ragnar Tómas, og Kristrún Ragnarsdóttir, gift Peter Dalmay, þau eiga dótturina Emmu Sóllilju.
Árni Tómas Ragnarsson var víðsýnn gáfu- og menningarmaður. Hann var einstaklega hlýr og glaðvær í viðmóti, hjálpsamur og réttsýnn og hafði óvenju sterka samúð með þeim sem minna mega sín. Hann á stóran hóp skjólstæðinga og vina af öllum stigum samfélagsins sem sakna nú vinar í stað.
Árni verður kvaddur í Dómkirkjunni miðvikudaginn 20. maí 2026 kl. 15.