Spurningin sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vildi leggja fyrir þjóðina um Evrópusambandið verður ekki samþykkt óbreytt á Alþingi. Það varð ljóst eftir að meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar lagði fram nýtt orðalag sem gengur þvert gegn upprunalegri tillögu ráðherrans.
Í upphaflegri þingsályktunartillögu ráðherra var lagt til að þjóðin svaraði eftirfarandi spurningu:
Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Svarmöguleikarnir voru:
Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Töldu spurninguna óljósa
Landskjörstjórn og fleiri umsagnaraðilar gagnrýndu orðalagið harðlega. Bent var á að óljóst væri hvað fælist í orðunum „halda áfram viðræðum“ þar sem aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið var hætt árið 2012.
Einnig var gagnrýnt að svarmöguleikarnir væru ekki skýr já eða nei svör.
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar féllst á þessa gagnrýni og leggur nú til nýtt orðalag:
Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
Svarmöguleikar:
Já
Nei
Minnihlutinn vill enn aðra spurningu
Minnihluti nefndarinnar leggur hins vegar til þriðju útgáfuna:
Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?
Svarmöguleikar:
Já
Nei
Auk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fjallar utanríkismálanefnd Alþingis einnig um tillöguna áður en hún fer aftur í þingið til annarrar umræðu.
Tíminn að renna út
Gert hefur verið ráð fyrir að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 29. ágúst næstkomandi. Minnihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill hins vegar fresta henni til 17. október.
Málið er nú þegar komið í ákveðna tímaþröng. Samkvæmt kosningalögum þarf að líða að minnsta kosti þrír mánuðir frá samþykkt Alþingis þar til þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram. Vilji stjórnarmeirihlutinn halda kosninguna 29. ágúst þarf því Alþingi að samþykkja málið eigi síðar en 29. maí.
Búast má við hörðum deilum á Alþingi næstu daga enda hefur það sætt gagnrýni að ætla að efna til ráðgefandi þjóðaratkvæðis um jafn stórt mál og hugsanlega endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið.