Allir dómarar við Landsrétt víkja sæti í máli Margrétar Friðriksdóttur sem sótt hefur um leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness sem sakfelldi hana fyrir meiðyrði í garð Barbörku Björnsdóttur héraðsdómara. Var hún dæmd til 200 þúsund króna sektargreiðslu og til að greiða málskostnað fyrir um þrjár milljónir króna. Þar sem dómurinn yfir Margréti í héraði felur í sér ekki þyngri refsingu en sektargreiðslu fær hún ekki sjálfkrafa áfrýjun fyrir Landsrétti heldur þarf að sækja um áfrýjunarleyfi.
Allir dómarar við Landsrétt víkja sæti í máli Margrétar