Apríl var hlýr og hiti yfir meðallagi á landinu öllu ef horft er til áranna 1991 til 2020. Sólin lék við íbúa Norðurlands. Vetrarveður, hvassviðri og úrkoma settu þó strik í reikninginn víða um land, sér í lagi fyrri hluta mánaðar.
Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti Veðurstofu Íslands þar sem greint er frá tíðarfari á landinu öllu í apríl.
Þar kemur fram að hlýjast hafi verið á Norðausturlandi í aprílmánuði en kaldara á suðvesturhorninu. Í upphafi mánaðar ríkti talsvert vetrarveður; þá var kalt og snjóþyngsli og hvassviðri ollu samgöngutruflunum á landinu öllu.
Á sama tíma gekk mikið eldingaveður yfir sunnanvert landið sem sló út rafmagni á stóru svæði. Fyrri hluti mánaðar var sérlega úrkomusamur en seinni hlutinn þurrari.
Hiti tæplega tuttugu stig á Akureyri
Í byrjun aprílmánaðar var óvenjumikill snjór í höfuðborginni miðað við árstíma. Í Reykjavík voru skráðir sex alhvítir dagar í apríl, fjórum fleiri en á meðalári. Í Stykkishólmi voru alhvítir dagar tveir, á Akureyri voru þeir sjö og á Dalatanga sex, fjórum færri en á meðalári.
Þrátt fyrir vetrarhörku í upphafi mánaðar var meðalhiti á landinu hlýrri en að meðaltali undanfarinn áratug víðast hvar á landinu. Hlýjast var á Austur- og Norðausturlandi en hæsti meðalhiti mánaðarins mældist 6,5 stig á Steinum undir Eyjafjöllum.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,6 stig á Krossanesbraut á Akureyri 22. apríl. Lægstur mældist hitinn -23,1 stig í Svartárkoti í Þingeyjarsveit 6. apríl. Þá mældust 149,6 sólskinsstundir í Reykjavík í apríl, 15,9 stundum undir meðallagi aprílmánaða árin 1991 til 2020.
Á Akureyri mældust hins vegar 197,8 stundir, eða 70,3 sólskinsstundir umfram meðallag. Frá upphafi mælinga hafa aldrei mælst eins margar sólskinsstundir á Akureyri í apríl.