Áhrifavaldur með tæplega 12 þúsund fylgjendur á Instagram hefur vakið athygli fyrir myndband þar sem hann fer býsna hörðum orðum um Ísland.
Margir Íslendingar hafa vafalaust séð myndbandið, annað hvort á Facebook eða Instagram, ef marka má athugasemdir við það. Óhætt er að segja að þar fái áhrifavaldurinn að heyra það og virðast fáir taka undir með honum.
Áhrifavaldurinn sem um ræðir kallar sig Vent Papi og af færslum hans á samfélagsmiðlum að dæma virðist hann vera býsna duglegur að ferðast um allan heim. Í færslu sem birtist á Instagram-síðu hans birtist myndband og texti þar sem hann fór hörðum orðum um Íslandsheimsóknina.
Gullni hringurinn einn sá „ljótasti“
„Þetta er langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni. Frá því ég kom var ekkert sniðið að þörfum ferðamanna og allt virtist vera gert til að ná meiri peningum af fólki,“ segir hann og bætir við að fyrsta upplifun hans af landinu hafi ekki verið jákvæð.
„Eftir að hafa borgað tæplega 40 dali fyrir rútu frá flugvellinum og 2 dali fyrir að nota salernið á rútustöðinni, gekk ég í gegnum mold að allt of dýru hótelinu mínu. Síðan fékk ég mér lambakjöt sem kostaði 50 dali,” segir hann og lætur óvönduð orð falla um vinsæla ferðamannastaði.
„Gullni hringurinn var einn ljótasti staður sem ég hef komið á á ævinni,” segir hann og bætir við að hann hafi upplifað fallegri staði í Ölpunum, Montana, Alaska, Patagóníu og Perú svo eitthvað sé nefnt.
„Þegar upp er staðið myndi ég frekar mæla með Noregi ef þú vilt heimsækja norður-evrópskt land, eða Kosta Ríka ef þú vilt sjá svartan sand,” segir hann og nefnir að Ísland sé einfaldlega of dýrt. „Fólkið er ágætt, en fyrir mig er þetta einfaldlega ekki þess virði.“
Segir allt hafa fokið í burtu
Í myndbandinu fer hann svo yfir þetta frekar og lætur allt flakka, gagnrýnir meðal annars veðrið.
„Fararstjórinn minn sagði: „Ó, það er svo gott veður í dag. Kannski ættum við að vera hér í fimm mínútur í viðbót.“ Ég hugsaði með mér: Ég vil ekki drepa stemninguna, en kommon. Kommon. Þetta er niðurdrepandi. Og í rauninni er það þannig. Fararstjórinn minn sagði mér að Íslendingar taki mest af þunglyndislyfjum á mann í heiminum.“
Í myndskeiðinu gerir Vent Papi einnig athugasemdir við sögu og menningararf landsins. Hann segir að ólíkt mörgum öðrum Evrópulöndum sé lítið um fornar byggingar, kastala og virki sem ferðamenn geti skoðað.
„Það er ekkert sem var byggt fyrir þúsund árum þegar fyrstu landnemarnir komu, því allt fauk í burtu. Landslagið er svo hrjóstrugt að allt bara fauk í burtu,“ segir hann.
Þrátt fyrir harða gagnrýni leggur hann áherslu á að hann beri engan kala til landsins.
„Ég er bara að segja þetta sem maður sem hefur ferðast um allan heim. Versta virðið fyrir peninginn hefur verið Ísland. Engin óvild gagnvart Íslandi,“ segir Vent Papi að lokum.
„Ég eiginlega finn til með þér“
Í athugasemdum, bæði á Instagram og Facebook, gagnrýna margir þessi hörðu orð hans um Ísland – bæði Íslendingar og útlendingar. Vilja sumir meina að um svokallaða „reiðibeitu“ sé að ræða sem er til þess fallin að vekja viðbrögð.
„Íslenskar konur eru þær fallegustu í heimi. Þetta er mjög öruggt land. Fossarnir eru stórkostlegir. Já, allt er frekar dýrt en það er þess virði,“ segir einn.
„Ef þú heldur að þú hafir séð Ísland þegar þú ert búinn að sjá Gullna hringinn skaltu endurskoða málið,” segir annar.
Fleiri taka í svipaðan streng:
„Besti staður sem ég hef komið til. Ég er búinn að fara tvisvar,” segir einn.
„Ég hef ferðast um allan heim og Ísland er eitt af mínum uppáhaldslöndum af þeim 50 sem ég heimsótt. Náttúran var frábær og fólkið yndislegt,” segir annar.
„Elskaði að fara til Íslands. Ef þú kynnir þér málið er ódýrt og tiltölulega hagstætt að koma sér á milli staða. Við vorum fjögur og leigðum bíl í viku og það borgaði sig. Mjög auðvelt að keyra þarna,” segir ferðamaður sem ferðaðist um landið á bílaleigubíl.
„Þú færð ekki mikinn stuðning í athugasemdum eftir þetta, félagi. Ég eiginlega finn til með þér eftir að hafa lesið athugasemdirnar,” segir svo einn Íslendingur.