Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Aflaheimildir til strandveiða verða auknar upp í tæp þúsund tonn. Með því ættu strandveiðar að ná 48 dögum, skerðingarlaust.
Þetta er í annað sinn í sumar sem stjórnvöld auka strandveiðiafla. Aukningin byggir á niðurstöðu skiptimarkaðar með aflaheimildir, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins, en hún skilaði meiri þorskaflaheimildum en gert var ráð fyrir í fyrri áætlun.
Breytingin tilkomin vegna skiptimarkaðs aflaheimilda
Inga segir breytinguna til komna vegna svokallaðs skiptimarkaðs með aflaheimildir.
„Því að strandveiðarnar eru náttúrulega 5,3% af öllum útgefnum afla og þeir geta náttúrulega ekki kannski verið að veiða ýmsan annan fisk, kolmunna eða hvað eina annað sem við getum ekki, strandveiðimennirnir okkar eru ekki þar.“
Með breytingunni er aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn eða úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Þetta er í annað sinn í sumar sem ráðherra eykur við strandveiðiafla í sumar. Í júní var aflamark þorsks hækkað um 2.700 tonn.
Inga segir auka 1000 tonnin skipta miklu máli, þau séu tæplega 700 milljón króna virði.
„Þetta er afskaplega mikils virði fyrir fyrir strandveiðisjómennina okkar og brothættu byggðirnar okkar að sjá á plássin og mörg störf sem fá að lifa lengur.“
Inga segir vel hugsanlegt að skagað verði upp í 48 daga strandveiði gangi allt vel.
„Það fer náttúrulega bara eftir aflagæftum og hvernig hefur gengið og hvernig gengur að ná í það sem eftir er af útgefnum heimildum og það hefur bara gengið mjög vel í allt sumar.“