„Ætti að vera að ríða út um allt en það eina sem ég get hugsað um er bíllinn minn“

Bríet Ísis ElfarBríet hefur ekki tíma fyrir eitthvað rugl.
Mynd: Instagram
Söngkonan Bríet Ísis Elfar birti nokkuð frakka Instagram-færslu þar sem hún birtir myndband af sér bjásta við bíl sinn í sumarblíðunni.
Við myndbandið skrifar hún texta sem fær sjálfsagt einhverja til að roðna:
„Ég er á mínum ríðulegasta aldri og ætti að vera að ríða út um allt en það eina sem ég get hugsað um er að bíllinn minn og tónlistarferillinn gangi upp.“
Bríet, sem varð 27 í mars, hefur átt blómlegan feril en hún hefur gefið út tvær plötur og fjölmargar smáskífur og hóf nýverið að herja á Bandaríkjamarkað. Hefur hún hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir tónlist sína en árið 2021 hlaut hún þrenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum, meðal annars fyrir bestu plötuna, Kveðja, Bríet.