Hann Adam Jones hefur fyrir svo margt að lifa með konunni sinni, Gyðju Kolbrúnu Jones. Ekki síst er hann glaður yfir að verða afi og litla barnbarnið, Rafael, er augasteinn hans.
Adam vill fá að vera sem lengst með fólkinu sem hann elskar en honum kann að vera skammtaður naumur tími. Adam glímir nefnilega við grafalvarlegan sjúkdóm en hann greindist nýlega með hvítblæði.
Greiningin kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og hefur sett líf Adams og fjölskyldu hans á hvolf. Vinkona hjónanna, Guðborg Eyjólfsdóttir, tjáir sig um baráttu Adams og Gyðu Kolbrúnar í Facebook-færslu. Þar kemur meðal annars fram að fjölskyldan þarf mjög á fjárstuðningi að halda. Guðborg skrifar:
„Kæru vinir og vandamenn.
Ég ætla að deila með ykkur sögu sem hefur snert vinkonu mína hana Kollu djúpt. Eiginmaður hennar, Adam, greindist nýlega með bráðahvítblæði (acute leukemia), alvarlegt krabbamein í blóði. Þessi greining kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og hefur gjörbreytt lífi okkar á örfáum augnablikum.
Adam er einstaklega góður og hjálpsamur maður sem hefur alltaf verið tilbúinn að leggja öðrum lið. Fjölskyldan hans er honum allt og hann var svo spenntur að verða nýr afi litla barnabarnsins þeirra, Rafaels.
Þrátt fyrir erfiðar lyfjameðferðir og óvissuna sem framundan er hefur hann sýnt ótrúlegt hugrekki og styrk. Sem vinkona er erfitt að horfa upp á þau ganga í gegn um þetta, og mögulega beinmergsskipta síðar meir. Samhliða þessu hafa miklir lækniskostnaður, ferðalög vegna meðferða og tekjumissir vegna veikinda skapað verulegt fjárhagslegt álag á fjölskylduna þeirra.
Því leitum við nú til ykkar eftir aðstoð. Hvert framlag, stórt sem smátt, mun nýtast beint í lækniskostnað, lyf, ferðakostnað og nauðsynleg útgjöld á þessum erfiða tíma. Sérhver króna skiptir máli og hjálpar Adam í baráttunni fram undan.
Ef þú hefur ekki tök á að leggja fram fjárhagslegan stuðning skiljum við það vel. Við biðjum aðeins um að þú hafir Adam í huga, sendir honum hlýjar hugsanir og deilir þessari færslu með öðrum.
Við erum óendanlega þakklát fyrir allan þann stuðning, kærleika og hlýju sem okkur hefur verið sýnd á þessum erfiðu tímum.
Takk fyrir að standa með þeim.“
Margt smátt gerir eitt stórt
Þetta spakmæli er í fullu gildi og máttur fjöldans er mikill þegar margir leggja saman til að hjálpa þeim sem eru í vanda. Fyrir þá sem gætu hugsað sér að hjálpa Adam með dálitlu fjárframlagi þá eru reikningsupplýsingarnar hér fyrir neðan:
Kt. 150169-3059 0142-26-011046