Fyrirtaka í máli grísks manns sem er ákærður fyrir að hafa orðið manni að bana í Kópavogi í nóvember fór fram í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 14 í dag. Hann var ekki viðstaddur þinghaldið.
Karl Ingi Vilbergsson héraðssaksóknari segir í samtali við fréttastofu að við fyrirtökuna hafi verjandi farið fram á dómskvaddan matsmann til að leggja mat á áverka hins látna.
„Nú er næsta skref að finna matsmann. Það mun taka einhverjar vikur,“ segir hann. Þá taki matsmanninn sennilega einhverjar vikur til að framkvæma matið.
Þetta hefur því í för með sér að aðalmeðferð málsins verður síðar en á var ætlað. Til stóð að aðalmeðferð í málinu hæfist 6. maí. Karl Ingi segir óvíst hvenær aðalmeðferðin verði. „Það er algjörlega óvíst að þetta klárist í sumar.“
Er enn í gæsluvarðhaldi
Portúgalskur karlmaður fannst látinn á heimili sínu á Kársnesi í Kópavogi í lok nóvember í fyrra. Grískur karlmaður var í framhaldinu ákærður fyrir að hafa banað honum.
Ákærða er gert að sök að hafa stungið þann látna þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Sá ákærði er enn í gæsluvarðhaldi og mun ákæruvaldið, að sögn Karls Inga, fara fram á að hann verði þar áfram meðan málið fer fyrir dóm.