Minnst 60 námuverkamenn létust í Súdan þegar hrun varð í gullnámu í gær. Óttast er um afdrif fjölda annarra og gert ráð fyrir að fleiri finnist látnir í rústunum.
Hrunið varð í Al-Zaraa-námunni nærri bænum El-Nahud í Vestur-Kordófan-héraði í gær og í morgun höfðu 60 lík verið grafin upp úr rústum hennar.
„Við vitum ekki hversu margir til viðbótar eru enn þarna undir,“ segir einn eftirlifenda við AFP.
Námuverkamenn sinntu björgunarstarfi í alla nótt og gera enn.