Karlmaður hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir sifskaparbrot með því að fara með 15 ára gamla stúlku um borð í fiskiskip þar sem hún dvaldi frá laugardagskvöldi fram yfir miðjan dag á sunnudegi. Skipið lagði til veiða snemma á sunnudagsmorgni og skipstjóra og áhöfn var ekki kunnugt um veru stúlkunnar þar.
Foreldrar stúlkunnar höfðu samband við lögregluna í Vestmannaeyjum skömmu eftir miðnætti aðfarnótt 2. apríl 2023. Í ljós kom að hún hafði tekið Herjólf til Landeyjahafnar um kvöldið og keyrt með manninum til Njarðvíkurhafnar og farið um borð í skipið með honum, þar sem hann vann.
Samkvæmt dómnum segjast maðurinn og stúlkan hafa mælt sér mót í Landeyjahöfn og stúlkan hafi ætlað með Herjólfi aftur til Vestmannaeyja með síðustu ferð, sem hafi verið felld niður.
Maðurinn hafi átt að mæta til vinnu í skipinu snemma um morguninn og fyrst hafi þau ætlað að láta stúlkuna gista á hóteli á Selfossi og taka Strætó til Landeyjahafnar á sunnudeginum, en henni ekki litist á þá áætlun. Þau hafi þá ákveðið að hún færi með manninum um borð í skipið og hann myndi skutla henni aftur í Landeyjahöfn eftir vinnu.
Foreldrar stúlkunnar vissu af samskiptum hennar við manninn og voru þeim mótfallin. Lögreglan hringdi í manninn um nóttina og spurði hvort stúlkan væri með honum, en hann neitaði því.
Maðurinn er dæmdur ofbeldismaður en stúlkan segist hafa litið á hann sem kærasta sinn og hann hafi ekki neytt hana til neins. Hún hafi verið skelkuð því hún komst ekki til baka til Vestmannaeyja eins og áætlað var óttaðist viðbrögð foreldra sinna. Hún hafi átt fárra annarra kosta völ en að fara með honum í skipið. Hún hafi engan þekkt á Selfossi eða í Njarðvík.
Skipstjóri skipsins segist hafa fengið fyrirspurn hvort stúlkan væri um borð í bátnum og uppgötvað að svo væri og snúið skipinu við. Það kom til hafnar skömmu fyrir klukkan fjögur síðdegis 2. apríl.
Viðurkenndi háttsemina en neitaði sök
Maðurinn viðurkenndi háttsemina en neitaði sök því hann taldi háttsemina ekki refsiverða og bar við gáleysi. Ætlun hans hafi ekki verið að koma stúlkunni undan valdi eða umsjá foreldra sinna eða stefna henni í hættu,
Maðurinn var ákærður fyrir að stofna heilsu stúlkunnar og þroska í hættu svo það varðaði 2. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga en var sýknaður af þeirri háttsemi.