29 stöðugildi verða lögð niður hjá Bláa lóninu og 55 starfsmenn verða fluttir milli sviða í skipulagsbreytingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu. Þar segir að einnig verði ráðið í ný störf sem ekki voru til innan fyrirtækisins.
Alls var 26 starfsmönnum sagt upp í breytingunum, samkvæmt Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa Lónsins.
Starfsfólki var tilkynnt um skipulagsbreytingar í höfuðstöðvum fyrirtækisins í morgun.
„Markmið breytinganna eru fyrst og fremst að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu sinni við dótturfélögin, við viljum gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á sölu og markaðssetningu með tækni, tryggja örugga framkvæmd þróunar- og fjárfestingaverkefna en á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til þess að ná árangri í framtíðinni,“ er haft eftir Sigríðu Magréti í tilkynningu.
„Í dag sjáum við á eftir góðu samstarfsfólki sem hefur staðið sig mjög vel og við óskum alls hins besta,“ segir hún enn fremur.
Heildarfjöldi stöðugilda hjá samstæðunni lækkar úr 807 í 778 við breytingarnar.
Fréttin var uppfærð eftir að búið var að fá staðfest hve mörgum var sagt upp í breytingunum.