Átján ára maður sem var áhrifamikill liðsmaður alþjóðlega netofbeldishópsins 764 hefur verið dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi í Svíþjóð fyrir margvísleg brot – þar á meðal tilraun til manndráps, nauðgun og brot tengd barnaníðsefni. 764-hópurinn hefur verið umsvifamikill um allan heim undanfarin misseri.
764-hópurinn herjar á börn og kúgar þau til ofbeldisverka í gegnum netið. Maðurinn, sem gekk undir nafninu „Chai“ í vefsamskiptum, var milli fimmtán og sautján ára gamall þegar hann framdi brotin, að því er Aftonbladet greinir frá.
Hann var einnig dæmdur til að greiða þolendum jafnvirði rúmlega 20 milljóna íslenskra króna.
Brotin teygja anga sína langar leiðir. Chai er meðal annars sakaður um að hafa hvatt til og veitt liðsinni við tilraun til manndráps á rúmlega áttræðum manni í Þýskalandi og um gróf brot gegn stúlku í Ástralíu yfir langt tímabil.
Fordæmisgefandi í Svíþjóð
Sænskur saksóknari segir málið vera fordæmisgefandi því gerandi sé dæmdur ábyrgur án þess að vera á staðnum.
Málið er ekki einsdæmi. Bandarískur liðsmaður 764-hópsins var dæmdur í 77 ára fangelsi í ágúst fyrir ítrekuð og alvarleg brot gegn ungum stúlkum á netinu.
764-hópurinn var mikið til umfjöllunar hér á landi í fyrra þegar ung íslensk stúlka steig fram og lýsti því hvernig hópurinn hefði haldið henni í heljargreipum og kúgað hana til að skaða sjálfa sig.