150 skjálftar mælst síðan - MBL.IS
Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg upp úr klukkan 21 í gærkvöld, tæplega 10 kílómetra vestur af Reykjanestá.
Yfir 120 jarðskjálftar hafa mælst síðan þá og var sá stærsti að stærðinni 3,5 laust eftir klukkan fimm í morgun.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Ekki mælst órói
Veðurstofu hefur ekki borist tilkynningar um að skjálftar hafi fundist í byggð.
Ekki mælist órói á svæðinu og sýna GNSS stöðvar á svæðinu ekki markverðar breytingar í bakgrunni, segir í tilkynningunni.
„Jarðskjálftahrinur er algengar á flekaskilunum og síðast varð svipuð hrina á þessu svæði í febrúar og apríl á þessu ári, vörðu þær frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga,“ sem segir í tilkynningunni.