Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði upp­færð - Vísir

Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði upp­færð - Vísir

Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði upp­færð - Vísir

Fjallað var á Vísi í vikunni um Ragnar Þór Jóhannsson, föður í Vestmannaeyjum, sem tilkynntur var til barnaverndar eftir að hann birti mynd af sér með syni sínum. Báðir halda þeir í byssu á myndinni. Ragnar Þór sagði í samtali við Vísi að byssan hefði verið óhlaðin og að sonur hans hefði ekki hleypt af byssunni, heldur aðeins verið með á veiðum. Hann vildi kenna honum snemma umgengni við skotvopn og hvaðan maturinn kemur.

Samkvæmt vopnalögum veitir lögreglustjóri skotvopnaleyfi og er meðal skilyrða að vera tuttugu ára gamall og með sjálfræði. Enginn má eiga eða nota skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri nema hafa til þess tilskilin leyfi eða heimildir. Samkvæmt lögum mega börn ekki nota skotvopn nema undir eftirliti fullorðinna leiðbeinenda eða þjálfara, á löglegum skotsvæðum og innan viðurkenndra skotfélaga. Fjallað er um lágmarksaldur til að nota tegundir skotvopna til íþróttaiðkunar í reglugerð.

Annað viðmið á Norðurlöndum

Áki Ármann segir félagið ítrekað hafa kallað eftir því að aldursviðmiðum verði breytt í vopnalögunum.

„Á Íslandi er það þannig að þú átt ekki að horfa á byssu fyrr en þú verður tuttugu ára,“ segir Áki en á Norðurlöndunum sé nálgunin önnur. Þar sé ekki fjallað um lágmarksaldur við að meðhöndla vopn en fjallað sé um aldursviðmið, til dæmis í Noregi, um hvenær ungmenni megi fara sjálf á veiðar. Þar séu veiðimenn hvattir til að taka börn og ungmenni snemma með sér á veiðar til að kenna þeim umgengni við skotvopn.

„Þannig að við bara venjumst þessu frá fyrstu hendi,“ segir hann og að til dæmis í Noregi megi ungmenni frá fjórtán ára aldri veiða sjálf minni dýr eins og kanínur og refi og svo við sextán ára aldur megi þau veiða sjálf stærri dýr eins og hreindýr.

Hann segir að í síðustu breytingu á vopnalögum hafi verið áform um að breyta aldursviðmiði í 18 ár en ekkert hafi orðið af því. Félagið telji þá breytingu nauðsynlega til að samræma lögaldurinn.

„Okkur finnst eðlilegt að þetta sé samræmt við til dæmis Skandinavíu þar sem fólk er að fá þetta 16 ára og má fara að veiða sjálft 18 ára,“ segir hann og að í Svíþjóð megi 18 ára ungmenni fara sjálf að veiða dádýr og megi fara með aðra með sér.

Hann segir mikla hefð fyrir því á Íslandi að börn fari með á veiðar og sjálfur hafi hann gert það frá sex eða átta ára aldri. Hann hafi alist upp í sveit og lærði að skjóta af byssu tíu eða tólf ára.

Áki heldur á fund á mánudag með formönnum norrænna samtaka og segir þetta ávallt til umræðu. Þar sé vilji fyrir því að viðmiðin séu sem yngst svo að fólk læri handtökin, öryggisreglur og veiðisiðfræði fyrr, á meðan heilinn er að þróast.

„Þannig að þú sért með þetta í blóðinu þegar þú ferð sjálfur að veiða,“ segir hann og að honum þyki, til dæmis, miklu verra að fólk mæti fyrst á skotvopnanámskeið 35 ára og hafi þá aldrei snert byssu. Það sé miklu betra að kenna fólki frá blautu barnsbeini að meðhöndla slík vopn.

„Við erum að sjá eldra fólk en áður á skotvopna- og veiðikortanámskeiðum, fólk sem hefur ekkert komið nálægt þessu. Þetta er svona félagsþrýstingur eða fjölskylduþrýstingur, þú giftist inn í fjölskyldu sem er mikil veiðifjölskylda og ferð á námskeið 35–40 ára,“ segir hann og að umhverfið hafi þannig breyst frá því áður þegar menn mættu nítján ára á námskeið og voru spenntir að fá leyfið tvítugir.

Alltaf fyrir aftan, aldrei framan

Áki telur að með réttri kennslu, meðhöndlun og skynsemi geti börn verið með í för þegar meðhöndla eigi skotvopn. Sjálfur hafi hann verið alinn upp við æðarvarp og hafi því reynslu af því.

„Við fórum yfirleitt út í litlum bát, kannski sex til átta manns á öllum aldri í bátnum. Það voru alltaf ein, tvær haglabyssur með í för til að verja varpið. Síðan var bara farið út í eyju og það var skotinn svartbakur, og síðan bara farið til baka sko. Það var ekki verið að kanna hver meðalaldurinn í bátnum væri,“ segir hann og að stundum hafi líka verið skotinn selur í matinn.

„Maður var stundum að koma baka með einhverja máva í bátnum og skotinn sel og það flaut allt í blóði.“

Áki segir færri alast upp við þessar aðstæður og hann sé því meðvitaður um að þetta sé ekki upplifun flestra barna. Hann segir auðvitað ámælisvert að afhenda ungu barni riffil til að skjóta úr í dag.

„En ef þú ert að labba til rjúpna með einhvern með þér og hann er alltaf fyrir aftan þig og þú kennir honum allar öryggisreglur, þá er það bara öryggisuppeldi.“

En þriggja, fjögurra, fimm ára gömul börn hafa kannski ekki færni til að fylgja svona reglum?

„Nei, það er alltaf mælikvarði líka á einhverja skynsemi. Þegar ég sem barn var að labba með þessum bræðrum og mágum og öllu liðinu á veiðar, þá var maður alveg hundskammaður ef maður hljóp fram fyrir þann sem var með byssu. Það var alveg lamið inn í mann, ef einhver er með byssu þá ertu fyrir aftan hann. Aldrei til hliðar, aldrei fyrir framan, alltaf fyrir aftan. Helst alveg nokkur skref fyrir aftan. Þannig að maður lærði mjög snemma hvar maður átti að vera þegar einhver er með byssu.“

Hann segir þetta kennt á námskeiði og það sé undir hverjum sem meðhöndlar slík vopn komið að fara yfir þessar reglur.

Allt bannað nema það sé sérstaklega leyft

Þórir Ingvarsson aðstoðarlögregluyfirþjónn segir það almennt séð þannig að fólk megi hvorki handleika skotvopn né nota þau nema það hafi til þess leyfi.

„Meginreglan í íslenskum lögum er að vopn eru bönnuð, nema með undanþágum,“ segir Þórir og útskýrir að vopnalögin séu ólík flestum öðrum lögum að því leytinu til að flest önnur lög segi til um hvað sé bannað en í vopnalögunum sé allt bannað nema til sé sérstakt leyfi.

„Það er í raun og veru allt bannað í kringum vopn nema það sé sérstaklega leyft,“ segir hann og að enginn eigi að handleika vopn nema hafa farið á námskeið og sé með skotvopnaréttindi.

Þórir Ingvarsson segir lögin skýr um meðhöndlun skotvopna og það skipti ekki máli hvort vopnið sé hlaðið eða ekki. Vísir/Vilhelm

„Það eru engar heimildir í lögum sem heimila fólki að leyfa þeim sem hafa ekki skotvopnaréttindi að handleika eða nota skotvopn,“ segir hann og að í tilfellum barna séu undanþágur í lögunum fyrir börn til að handleika vopn undir handleiðslu kennara eða skotstjóra,

„Þannig að í raun og veru má bara segja að það að fara með skotvopn, handleika skotvopn eða nota skotvopn krefst þess alltaf að viðkomandi sé með leyfi.“

Hann segir engu máli skipta þá hvort skotvopn sé hlaðið eða ekki því líklegast sé að sá sem ekki hafi skotvopnaleyfi hafi ekki fulla getu til að átta sig á því hvort skotvopnið sé hlaðið eða ekki.

Skipti ekki máli hvort byssan sé hlaðin

„Hvernig sem maður horfir á það þá er alltaf ákveðin hætta sem felst í því að láta þann sem ekki hefur vit á hlutunum handleika hættulega muni,“ segir hann og að því skipti engu máli hvort um sé að ræða hlaðið eða óhlaðið vopn eða raunverulegt vopn eða eftirlíkingu.

„Ástæðan fyrir því er sú að sá sem hittir einhvern með skotvopn, bara ef það kemur einhver labbandi á móti þér, þú ert að labba á Búrfell eða vara að viðra þig, svo mætir einhver með skotvopn, þú sérð ekkert hvort vopnið sé hlaðið eða ekki,“ segir hann og að eins myndi starfsmaður í verslun ekki vita hvort að haglabyssan sem fólk gæti sveiflað sé hlaðin eða ekki.

„Þannig að það hvort vopnið sé óhlaðið eða hlaðið kemur málinu bara ekkert við. Þú þarft réttindi og leyfi til þess að fá að handleika eða nota skotvopn og það er sæmilega fortakslaust í lögunum.“

Hann segir aldrei hafa verið heimild fyrir börn til að handleika vopn í vopnalögum, allt frá því að fyrstu vopnalögin voru sett í kjölfar morðs leigubílstjóra við Laugalæk árið 1968.

Hann segir samfélagið hafa breyst mikið frá þeim tíma og veiðar ekki jafn algengar og þá. Það sé ekkert sem banni börnum að taka þátt í veiðunum en vopnalögin séu fortakslaus með það að börn skuli ekki handleika vopn.

Fjarlægja reglulega skotvopn

Þórir segir lögregluna sinna eftirliti með fólki með skotvopnaleyfi og fari reglulega á heimili til að fjarlægja skotvopn þar sem frágangur og varsla hefur ekki verið í samræmi við lög og reglur. Hann segir alla sem fá skotvopnaleyfi þurfa að fara á námskeið og því eigi öllum sem eigi skotvopn að vera kunnugt um það hvernig eigi að meðhöndla þau, hverjir megi það og við hvaða aðstæður.

Þórir segir að þó svo að það komi upp nokkur mál á ári þar sem lögreglan þurfi að hafa afskipti af skotvopnaeigendum séu þeir langflestir með sitt á hreinu. Bara á höfuðborgarsvæðinu séu um fjórtán þúsund manns með skotvopnaleyfi og aðeins komi upp nokkur mál á ári þar sem lögregla sjái þörf á eftirliti.

„Langflestir eigendur skotvopna, skotvopnaleyfishafar, hvort sem það eru veiðimenn eða sportskyttur eða annað, er stórkostlega flottur hópur sem vill bara iðka sitt sport og gerir þetta allt innan allra laga og reglna. Það er tiltölulega sjaldgæft að það sé verið að setja út á þennan hóp. Hann er bara yfirhöfuð til fyrirmyndar, það verður bara að segjast.

#aldursviðmið #börn #verði #vilja #vopnalögum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924193d/vilja-ad-aldursvidmid-um-born-i-vopnalogum-verdi-uppfaerd

📰 Aðrar fréttir

Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
📅 11.10.2026 👁️ 1
Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
Hæstiréttur hefur talað skýrt. Við höfum ekki innleitt bókun 35 þannig að íslenskir dómstólar geti beitt þeirri forgangsreglu sem bókunin felur í sér....
UK does not support Trump's Russia diesel deal, says Streeting
📅 11.10.2026 👁️ 1
UK does not support Trump's Russia diesel deal, says Streeting
The defence secretary says the US and its allies need to increase pressure on Vladimir Putin to end the war with Ukraine.
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
Undanfarið hefur borið á því að fólk hafi fordæmt vinnubrögð fjölmiðla á meðan aðrir hrósa og lofa. Á dögunum var Elísabet Inga Sigurðardóttir til að ...
Vara við því að fara um flug­velli í Sádí-Arabíu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Vara við því að fara um flug­velli í Sádí-Arabíu - Vísir
Í umfjöllun BBC kemur fram að Hútar hafi þagað þunnu hljóði eftir árás gærdagsins þar til í dag. Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu og banda...
Pope Leo XIV to have surgery after lump found on lung
📅 11.10.2026 👁️ 1
Pope Leo XIV to have surgery after lump found on lung
The 71-year-old pontiff said the nodule was identified "at a very early stage".
Rafmagnsvopn í fórum manns sem var handtekinn fyrir líkamsárás
📅 11.10.2026 👁️ 1
Rafmagnsvopn í fórum manns sem var handtekinn fyrir líkamsárás
Lögregla handtók mann í gærkvöld sem er grunaður um líkamsárás og brot á vopnalögum. Rafmagnsvopn, svokallaður „taser“ eða stuðbyssa, fannst í fórum m...
Meiri einmanaleiki meðal þeirra sem ná ekki endum saman
📅 11.10.2026 👁️ 1
Meiri einmanaleiki meðal þeirra sem ná ekki endum saman
Landlæknisembættið hefur fylgst með þróun einmanaleika hjá þjóðinni frá 2016.Niðurstöðurnar sýna að einmanaleiki hefur aukist lítillega á þeim tíma.Ei...
Nepal: Buildings swept away as flash floods hit Budhi Gandaki river
📅 11.10.2026 👁️ 1
Nepal: Buildings swept away as flash floods hit Budhi Gandaki river
A flash flood at the Budhi Gandaki River has swept away several buildings and bridges, two months after catastrophic floods hit the country.
Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir
Klippa: Í bóli Bjarnars - Friðrik Ómar Jólin eru á næsta leiti. Eða eru þau það? Október er rétt að byrja. Fólk, margt hvert, amast við því að fá ekki...
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
📅 11.10.2026 👁️ 2
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið. Á samfélagsmiðlum eru markaðssettar mismunandi tegundir peptíða sem eru sagðir hafa...
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
📅 11.10.2026 👁️ 2
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum kaupenda eignarhluta í flugskýli á Akureyrarflugvelli um að fella úr gildi samþykkt bygg...
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein
📅 11.10.2026 👁️ 2
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein
Í Lichtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heiti...
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Liechtenstein
📅 11.10.2026 👁️ 1
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Liechtenstein
Í Liechtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heit...
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
Tvær nýjar deildir eru á teikniborðinu hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmiðið með þeim er að skapa svigrúm innanhúss, fækka innlögnum og tryggja betra...
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
Í dag eru nákvæmlega 40 ár liðin frá því að leiðtogar stórveldanna, Reagan og Gorbatsjoff, hittust hér í Reykjavík til að freista þess að ljúka kjarno...
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
Að minnsta kosti ellefu voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir braki og glerbrotum, að því er Guardian greinir frá. Sjötugur maður var með...
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
Óskað var eftir aðstöð lögreglu vegna manns í Kópavogi sem reyndi að brjóta sér leið inn í íbúð vopnaður hnífi og hamri. Þetta kemur fram í dagbók lög...
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin11. október 2026InnlentLeave a Comment Rauður fáni með merki Alþýðufylkingar...
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
Að minnsta kosti tólf eru látnir og yfir þrjú hundruð eru særðir eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær. Nokkrir hinna s...
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
Samt eiga flest pör eitt sameiginlegt:  Þau langar svo að vera hamingjusöm! „Yngsta parið sem hefur leitað til mín var 17 ára gamalt,“ segir Íris Eik ...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
📅 11.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
Mynd Koma utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
📅 11.10.2026 👁️ 3
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða sto...
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi og Faxaflóa
📅 11.10.2026 👁️ 1
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi og Faxaflóa
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi og Faxaflóa í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassv...
Minnir  helst á fangabúðir nasista
📅 11.10.2026 👁️ 3
Minnir helst á fangabúðir nasista
Hundruð Íslendinga voru send til afplánunar í dönskum fangelsum á 18. og 19. öld. Dánartíðni íslenskra fanga var hærri en fanga af öðrum þjóðernum og ...
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
Meet Rony, a Springer Spaniel serving with the National Police in the Canary Islands, who has received a special honour for his remarkable work helpin...
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
📅 11.10.2026 👁️ 3
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Band...
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
Í hugleiðingum sínum segir veðurfræðingur Veðurstofunnar að vaxandi lægð á Grænlandshafi sé á norðurleið og að skilin frá henni nálgist landið. Hægt v...
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
📅 11.10.2026 👁️ 4
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
Maður sem stal meðal annars heilum sjóðsvélum, golfpoka og bjórkútum og færði rúma eina og hálfa milljón króna inn á eigin reikning með stolnum greiðs...
Óttast stefnubreytingu hjá DR
📅 11.10.2026 👁️ 4
Óttast stefnubreytingu hjá DR
Óttast stefnubreytingu hjá DR Dansk­ir leik­ar­ar, leik­stjór­ar, hand­rits­höf­und­ar, mynda­töku­menn og fleiri sem unn­ið hafa að gerð leik­inna sj...
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
📅 11.10.2026 👁️ 4
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
Jet2 has confirmed it is withdrawing its flights and holiday packages to La Palma, just six months after launching its first direct service to the isl...
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
Maður var handtekinn í hverfi 108 í Reykjavík í gær eða nótt vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi ve...
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
The Canary Islands are expecting an improvement in weather conditions today, Sunday 11th October, although occasional rain showers remain possible acr...
Drónaárás á rússneskt gagnaver
📅 11.10.2026 👁️ 4
Drónaárás á rússneskt gagnaver
Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það re...
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
📅 11.10.2026 👁️ 2
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
Police say they will keep restricting access to the city centre after thousands of people were detained and released on Saturday.
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
Manchester City visit Liverpool on Sunday with a lot of uncertainty hanging over them. Phil McNulty looks at what lies ahead.
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 5
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 5
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 4
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 4
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 4
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
📅 10.10.2026 👁️ 3
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
Kimberley Atkinson assumed her symptoms were depression until her behaviour started to change dramatically.