„Þetta þýðir mikla skerðingu á allri þjónustu fyrir fólk. Amma mín vann á bókasafni í Kópavogi, mamma mín einnig, nú ég og dætur mínar. Ég elska bókasöfn og þetta skiptir miklu máli,“ segir Kamilla Einarsdóttir sem ræddi sumarlestur og bókasöfn í þættinum Fram undan á Rás 2.
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að fækka bókavörðum Þjóðarbókhlöðunnar í haust og að í þeirra stað komi öryggisverðir. Þjónustan skerðist því talsvert. Starf öryggisvarða er ekki að svara spurningum eða leiðbeina gestum heldur að sinna gæslu.
„Alveg eins og að hafa græna garða svo okkur líði vel, þurfum við staði sem hafa ró og næði,“ segir Kamilla og bendir á að einmanaleiki sé að aukast, sé alvarlegt heilsufarsvandamál og rými eins og bókasöfn séu nauðsynlegur samkomustaður.