Verðbólgan var 5,6 prósent í ágúst samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Það er mesta verðbólga sem mælst hefur síðan í ágúst 2024. Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár.
Meðal þess sem hefur áhrif til aukinnar verðbólgu er að fataverð hefur hækkað eftir að útsölum lauk og kostnaður fólks vegna húsnæðis hefur aukist. Flugfargjöld lækkuðu þó milli mánaða eftir að hafa hækkað mikið í júlí.
Skráningargjald í opinberum háskólum hækkaði úr 75 þúsund í 100 þúsund krónur og það leiddi til 0,07 prósenta hækkunar neysluverðsvísitölunnar. Þetta er í fyrsta skipti í tólf ár sem skráningargjaldið hækkar.
Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár. Síðustu ár hefur verðbólga mest farið í 10,2 prósent í febrúar 2023 og minnst mælst 3,7 prósent í nóvember í fyrra.
Rúmlega fimm prósenta verðbólga er langt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Stefna hans gengur út á að verðbólga sé sem næst 2,5 prósentum.
Stjórnvöld lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti til að draga úr áhrifum hækkana eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófst fyrr á þessu ári. Það dugði ekki til að halda verðbólgunni undir þeim mörkum sem virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninga.
Góðan dag og velkomin á fréttavakt um verðbólgu í ágúst og áhrif hennar á kjaramál.
Hagstofan greinir frá því klukkan níu hversu mikil verðbólgan var í ágúst. Þegar gengið var frá kjarasamningum í febrúar 2024 var ákvæði um að hægt væri að segja þeim upp ef verðbólgan mældist yfir 4,7 prósentum í þessari verðbólgumælingu. Lengi hefur legið fyrir að svo yrði.
Verðbólgan var 5,3 prósent í síðasta mánuði. Landsbankinn spáir því að verðbólga hafi aukist í ágúst og verði 5,5 prósent, Íslandsbanki spáir aðeins meiri verðbólgu, 5,6 prósentum.
Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.