Aðgerðahópur er enn við störf í Mosfellsbæ og veiðimenn verða á vakt alla helgina.
Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri, segir að brugðist sé við öllum ábendingum sem berast.
Minka er enn leitað eftir að hundruð, jafnvel þúsundir, sluppu úr loðdýrabúi í Mosfellsdal í fyrradag.
Engin staðfest tilfelli um minka í byggð
Hilmar segir að nýliðin nótt hafi verið tíðindalítil og að ástandið sé að róast.
„Og erum að fá fáar ábendingar inn á ábendingasíður hjá Mosfellsbæ. Sem betur fer eru engin staðfest tilfelli í byggð.“
Um tólf þúsund dýr voru í búinu.
Ekki liggur fyrir hve mörg hafa verið drepin eða hvað mörg eru komin aftur í hús.
Hilmar segir ástandið vera betra en hann óttaðist í fyrstu og áhyggjur af áhrifum á lífríkið hafi dvínað.
„Já, ég myndi segja það. En maður skal aldrei segja aldrei. Við bara krossum fingur að þetta sé að hafast.“