Aðalmeðferð Reykholtsmálsins svokallaða hófst í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Spilaðar voru hátt í þrjár klukkustundir af hljóðupptökum úr síma eins sakborninga, Andra Más Mortensen Birgissonar.
Andri Már er ákærður í málinu ásamt fimm öðrum, meðal annars unnustu sinni, tengdaföður og bróður ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.
Upptökurnar náðu yfir vikutímabil. Sími Andra tók upp öll símtöl og einnig hljóð þegar hringt var úr símanum þó að símtölunum væri ekki svarað.
Eftir því sem fréttastofa kemst næst er fordæmalaust að svona gögn séu til við meðferð sakamála. Hægt er að fara í gegnum nær alla atburðarrásina með því að hlusta á upptökurnar sem saksóknari spilaði í dag.
Samskiptin byrja á því að Andri talar við tengdaföður sinn á þriðjudegi, nokkrum dögum áður en frelsissviptingin átti sér stað, og samþykkir að rukka fyrir hann leigu sem brotaþoli var sagður skulda tengdaföðurnum.
Á föstudeginum þar á eftir talar Andri við tengdaföður sinn aftur og segist ætla að fá tvo félaga sína til að aðstoða sig við að fá peninginn frá brotaþola. Hann segist þó ekki ætla að gera neitt of gróft – bara hræða manninn og fá peninginn.
Skömmu áður hafði hann þó hringt í annan mann, sem ekki er ákærður í málinu, og sagst vanta pening vegna skuldar sem væri komin í innheimtu svo að unnusta hans yrði ekki gjaldþrota.
Þar minnist hann ekkert á það að hann ætli að rukka pening fyrir tengdaföður sinn en segist vera alvarlega að hugsa um að „frelsissvipta einhvern og ræna“ og „Þetta er konan mín sko, ég svífst einskis. Mér er skítsama.“
Misþyrmdu manninum tímunum saman og allt í blóði
Á föstudeginum á eftir fer Andri ásamt mönnunum tveimur heim til brotaþola og þeir svipta hann frelsi sínu, samkvæmt upptökunum. Þegar langt er liðið á aðfaranótt laugardags fara hinir mennirnir tveir.
Andri hefur þá samband við unnustu sína og segir að þeir hafi orðið hræddir og farið. Hann segir þá hafa barið manninn illa og allt sé í blóði á heimilinu. Brotaþoli hafi nánast sloppið frá þeim og Andri kvaðst orðinn stressaður um að sést hafi til þeirra.
Andri virðist í nokkru uppnámi í þeim samtölum sem hann á við unnustu sína og biður hana að hjálpa sér að finna út úr næstu skrefum með sér. Þegar klukkan er að ganga sex um morguninn heyrir hann í bróður sínum og biður hann að sækja unnustu sína og koma með hana í Reykholt.
Svo heyrast upptökur úr símtölum Andra úr hraðbanka Landsbankans þar sem hann reynir að taka pening út af korti brotaþola án þess þó að það gangi. Talið er að brotaþoli hafi á meðan verið í haldi unnustu hans og bróður.
Hrósar unnustu sinni fyrir að rugla brotaþola í ríminu
Í símtali við unnustu sína á sunnudeginum ítrekar Andri að hún megi ekki hleypa birtu inn til mannsins, þau vilji að hann sofi og viti ekki hvað tímanum líður. Hann hrósar henni fyrir að hafa tekist að ruglað manninn í ríminu.
„Með klukkuna og dagana; það þarf að vera dimmt þarna. Hann heldur að það sé laugardagur. Þetta virkaði vel ástin mín. Þú varst svo mikill snillingur að rugla hann með dagana.“
Á mánudag hringir Andri í Landsbankann og vill koma upp reglulegum greiðslum af reikningi brotaþola fyrir leigu til tengdaföður síns. Hann segist hafa umboð hjá brotaþola á þeim forsendum að hann sé að aðstoða hann.
Maðurinn sé palestínskur flóttamaður sem þau reyni að hjálpa að fóta sig hér á landi. Maðurinn sé veikur heima og komist ekki í þetta sjálfur, segir Andri. Það gekk þó ekki því brotaþoli hafði ekki rafræn skilríki.
Fær rafræn skilríki fyrir brotaþola og sendir úr landi
Því næst hringir Andri í símafyrirtækið Símann og blekkir starfsmann til að setja upp rafræn skilríki í síma brotaþola – sem tekst. Þá fer hann að undirbúa kaup á flugmiða fyrir manninn úr landi, til Parísar og þaðan til Möltu.
Hann ræðir við bróður sinn um að þeir þurfi að fara varlega með að millifæra peningana til að vekja ekki grunsemdir.
Í símtali við unnustuna segir hún Andra að brotaþoli sé svo blóðugur að hann geti ekki burstað í sér tennurnar.
Gullúr á hendina og keðja í stíl
Upptökurnar ná ekki til þess tíma þegar maðurinn fer úr landi á mánudeginum en á þriðjudeginum kveður við nýjan tón hjá Andra sem segist vera orðinn hann sjálfur á ný.
„Ég segi ógeðslega gott, mér líður ógeðslega vel,“ segir hann og segist vera kominn með nýtt gullúr á hendina og keðju í stíl.
Reynir að hughreysta tengdaföður sinn
Hann ræðir við tengdaföður sinn um að þeir verði að láta bara sem maðurinn sé týndur. Tengdafaðirinn eigi að segjast ekki eiga aukalykil að íbúðinni og segjast ekkert hafa séð brotaþola frá því fyrir helgi.
Andri ráðleggur honum um að hleypa engum inn í íbúðina og segjast með því vera að virða leigusamning. Andri segir að það verði svo bara lýst eftir brotaþola, fólk haldi bar að hann sé týndur.
„Svo kemur í ljós að hann sé farinn úr landi og þetta er bara búið, segir hann. Ég veit alveg hvað ég er að gera kallinn minn, andaðu bara inn og út,“ segir Andri við tengdaföður sinn.
Segist hafa fengið kökk í hálsinn þegar hann kvaddi brotaþola
Tengdapabbinn virðist hafa miklar áhyggjur af málinu og Andri reynir að hughreysta hann. Hann segir að þau hafi farið með brotaþola út að borða í bænum áður en hann fór úr landi, sem rímar ekki við önnur símtöl þar sem brotaþoli var augljóslega mjög illa á sig kominn.
„Við buðum honum út að borða og fengum okkur rauðvín, hann var bara drullufeginn að vera að fara úr landi. Við töluðum um dóttur hans,“ segir hann tengdaföður sínum.
„Ég knúsaði hann þegar hann fór og sagði: ég vona að þú finnir hamingju þegar þú hittir dóttur þína,“ segir Andri. Ekki heyrist hvað tengdapabbi hans segir en Andri svarar:
„Ég skil það mjög vel, ég fékk kökk í hálsinn þegar ég kvaddi hann. Þetta endaði allt vel, ég skilaði honum hjartans kveðjum frá þér.“
Í síðustu upptökunum sem eru spilaðar er Andri að reyna að finna út úr því hvað gera eigi við bíl brotaþola. Þau ákveða að skilja hann eftir í bílakjallara við Hamrahlíð. Andri Már kom fyrir dóminn í dag en neitaði að gefa skýrslu eða láta bera nokkuð undir sig.