Kanadíska tónlistarkonan Shania Twain segist hafa alist upp á „mjög ofbeldisfullu“ heimili þar sem foreldrar hennar beittu hana og systur hennar líkamlegu ofbeldi, en hún deildi átakanlegum smáatriðum úr bernsku sinni í viðtali á fimmtudag.Twain (60) sagði að hún og systur hennar, Jill og Carrie Ann, hefðu reglulega orðið vitni að slagsmálum milli móður sinnar, Sharon, og stjúppabba, Jerry Twain, á uppvaxtarárunum í Ontario í Kanada, og að þær hefðu einnig verið beittar ofbeldi.
Tónlistarstjarnan var beitt miklu ofbeldi af hálfu foreldra í æsku: „Ég lærði að loka á það“