Sex hæða fjölbýlishús með 24 íbúðum hrundi í Tal al-Hawa-hverfi í Gazaborg í nótt. Brak úr húsinu lenti á nálægum húsum og tjöldum.
Almannavarnir segja að minnst tólf hafi farist þegar byggingin hrundi. Þeirra á meðal eru fimm börn. Um hundrað manns er saknað.
Húsið skemmdist mikið í árásum Ísraelshers á Gaza 2024 og í mars 2025, að sögn Mahmoud Basal, talsmanns almannavarna. Hann sagði að fólk hefði ekki aðra valkosti en að búa í illa förnum húsum þrátt fyrir hættu á hruni.
Flest hús á Gaza voru eyðilögð eða skemmdust í árásum Ísraela. Almannavarnir segja að tvö þúsund hús á Gaza séu svo illa farin að hætta sé á að þau hrynji.