Tilkynningum til barnaverndar fækkaði á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við fyrri ár. Alls bárust 4.812 tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum ársins sem er 4,1% fækkun frá sama tímabili árið 2025.
Þetta kemur fram í nýrri samantekt Barna- og fjölskyldustofu.
Tilkynningum um kynferðisofbeldi fjölgar á milli ára
38% allra þeirra tilkynninga sem bárust til barnaverndar á tímabilinu voru vegna vanrækslu á börnum. Næst flestar tilkynningar bárust vegna áhættuhegðunar barns eða um 35%. Tilkynningum um vanrækslu fækkar þó frá árinu 2025 en öðrum tilkynningum fjölgar.
Tilkynningum um líkamlegt ofbeldi fjölgar en alls bárust 60 fleiri tilkynningar á fyrstu mánuðum ársins í ár en á sama tíma 2025. Tilkynningum um kynferðislegt ofbeldi fjölgar sömuleiðis, en þeim fjölgar úr 194 í 214 á milli ára. Þetta sýnir að jafnvel þó að heildartilkynningum fækki fjölgar tilkynningum um kynferðisofbeldi.
Lögregla enn langstærsti tilkynnandinn
74,9% allra tilkynninga koma frá opinberum aðilum. Lögregla er áfram stærsti tilkynnandinn en 37,8% allra tilkynninga bárust frá lögreglu. Næst flestar tilkynningar bárust frá skólaþjónustu eða 20%. Heilbrigðisþjónustan er tilkynnandi í 10% tilfella.
Álíka margar tilkynningar, um það bil 6%, bárust frá annars vegar foreldrum barna og hins vegar nágrönnum.