„Þessar framkvæmdir eru heilmikið föndur sem hefur tekið sinn... - MBL.IS
📅 2026-05-24 14:44:16
👁️ 1 lesið
„Þessar framkvæmdir eru heilmikið föndur sem hefur tekið sinn tíma. Brúin er komin vel til ára sinna, þurfti því viðhald og í svona verkefnum er að mörgu að hyggja,“ segir Júlíus Róbertsson.
Hann er einn liðsmanna í brúarvinnuflokki Vegagerðarinnar sem síðustu mánuði hefur verið að störfum við brúna yfir Blöndu nærri Löngumýri í Austur-Húnavatnssýslu. Þetta er stór hengibrú, smíðuð árið 1944, og eftir notkun í meira en 80 ár þurfti að gera ýmsar endurbætur. Farið var í steypuviðgerðir, bæði á stöplum og turnunum tveimur sem halda uppi vírivirkinu sem brúargólfið hvílir á. Einnig þurfti að dytta að handriðum og nefna mætti fleira.“
Lagfæringar á brúm bæti öryggi
Flokkurinn sem núna er að störfum við Blöndu er gerður út frá Hvammstanga og er undir verkstjórn Vilhjálms Arnórsson brúarsmiðs. „Þetta er traustur mannskapur; strákar sem kunna vel til verka. Núna eru fjórir til fimm menn við Blöndu, en annars skiptum við hópnum svolítið milli verkefna. Annað gengi er núna í Norðurárdal í Borgarfirði. Svo er fram undan í sumar að lagfæra brú yfir Svartárdal sem er hér nálægt. Mörg verkefni vinnuflokksins nú felast í því að lagfæra brýr með aðgerðum sem miða að því að bæta umferðaröryggi,” segir Vilhjálmur, sem á að baki langan feril við brúarsmíði.
„Við Blöndu byrjuðum við í október og höfum tekið þetta í nokkrum lotum. Núna sér þó orðið fyrir endann á verkefninu, sem ætti að ljúka eftir tvær vikur eða svo. Steypuviðgerðir voru stór hluti af þessu. Einnig verkuðum við upp söðlana í turn brúarinnar sem vírar hennar hvíla í. Þar var allt menjað, vatnsvarið og kíttað í bak og fyrir. Núna held ég að segja megi að ástand brúarinnar sé orðið býsna gott og ekkert bendir til annars en að hún dugi í einhverja áratugi enn,“ tilgreinir Vilhjálmur.
Að mörgu er að hyggja, segir Júlíus Rafnsson brúarsmiður.
mbl.is/Sigurður Bogi
Mikil umferð yfir brúna
Umferð yfir Blöndubrúna er mikil. Í fyrsta lagi er hún tenging innansveitar í Blöndudal og nærliggjandi byggðum. Yfir sumartímann og fram á haust bætist svo við umferð bíla sem fara um Kjalveg. Leið margra, sem til dæmis koma að norðan, er þá að beygja af hringveginum í Langadal til suðurs, þar sem ekið er austanvert við fljótið. Svo er farið yfir brúna og þá beygt til vinstri og þar fram Blöndudal. Þegar kemur þar upp á brúnir tekur Kjalvegurinn við, alls 170 kílómetra leið yfir hálendið suður að Gullfossi og í Bláskógabyggð.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.
#eru
#framkvæmdir
#föndur
#heilmikið
#þessar