Heildartekjur Sýnar á öðrum ársfjórðungi jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu var vöxturinn 5,5%. Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallarinnar.
Þar segir að vöxtinn megi helst rekja til kjarnastarfseminnar. Meðal annars jukust tekjur af fjölmiðlun um 12,3% milli ára en 9,1% af auglýsingasölu.
Heildarrekstrarkostnaður Sýnar lækkar um 2,3% milli ára. „Þrátt fyrir 93 m.kr. kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu,“ segir í tilkynningunni.
Vef- og útvarpsmiðlar áfram innan félagsins
Viðræðum Sýnar og Ása, sem áður voru Síminn, um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar var slitið á dögunum. Félögin komust að þessari niðurstöðu eftir áreiðanleikakönnun.
„Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026,“ segir í tilkynningunni.
Þar er haft eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted forstjóra að fyrri árshelmingur 2026 staðfesti jákvæðan viðsnúning í rekstri félagsins.