Svartþröstur hefur gert sér hreiður á lítilli hillu ofan við bergfléttu við hús í Mosfellsbæ.
Magnús Guðmundsson, fuglavinur og íbúi hússins, segir hreiðrið hafa uppgötvast 11. apríl og síðan þá hafi svartþrastarmóðirin haft í nógu að snúast. Hún hafi verpt fjórum eggjum sem nú hafa klakist út.
„Hún bíður með að leggjast á þangað til hún er komin með öll eggin sem hún ætlar að verpa, þá klekjast þau út samtímis. Ungarnir ná fullri stærð á hálfum mánuði.“
Magnús segir svartþrastarmóðurina skreppa reglulega frá hreiðrinu til að ná í orma, aðallega ánamaðka. Karlfuglinn hjálpi aðeins til en í meginatriðum sé það kvenfuglinn sem liggi á og mati ungana.
Fyrir sjö árum verpti svartþröstur á bergfléttu hjá húsi Magnúsar og ungaði út þremur fuglum. Árið eftir setti Magnús upp hillu til að auðvelda fuglum að búa sér hreiður við bergfléttuna. Fyrir þremur árum gerði svartþröstur sér loks hreiður í hillunni. Magnús setti upp myndavél til að sýna lífið í hreiðrinu í beinu streymi á YouTube. Síðan þá hefur svartfugl gert sér hreiður á hverju ári við bergfléttuna.
Hægt er að fylgjast með svartfuglafjölskyldunni í beinni útsendingu á Youtube: