Lögregla hefur ekki enn haft hendur í hári þeirra sem unnu skemmdarverk á regnbogafána í og við tröppurnar sem liggja niður að Grafarvogskirkju í fyrrinótt.
Farið hefur verið yfir myndefni úr eftirlitsmyndavélum við kirkjuna en ekki hefur tekist að bera kennsl á mennina sem unnu verknaðinn. Lítur út fyrir að þeir hafi verið tveir að verki.
Mennirnir huldu sig að einhverju leyti
Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að gæði myndefnisins hafi að hluta til með það að gera að erfitt sé að bera kennsl á mennina og að hluta til sé það vegna þess að þeir hafi hulið sig að einhverju leyti á meðan þeir unnu verknaðinn.
Spurður hvað sé næst í málinu segir Grétar það einfaldlega vera í rannsókn. Lögregla bíður eftir frekari gögnum, hvort einhver komi fram með nýjar vísbendingar eða gefi sig fram vegna málsins.
Kæra hefur enn ekki borist frá Grafarvogskirkju og segir Grétar að lögregla hafi ekki verið í sambandi við forsvarsmenn kirkjunnar að honum vitandi síðan málið var tilkynnt til lögreglu í gærmorgun.
Málið er rannsakað sem hatursglæpur líkt og Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn greindi mbl.is frá í gær.
