Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ - Vísir

Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ - Vísir

Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ - Vísir

Aðalmeðferðin hófst klukkan níu í héraðsdómi Suðurlands en enginn sakborninganna var viðstaddur upphaf aðalmeðferðarinnar. Til stendur að hún standi fram til 25. ágúst og munu þau gefa skýrslu á þessum tíma.

Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl árið 2024.

Hafist var að hlusta á upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar, fyrst við tengdaföður sinn Sigurð Gunnar Ásgeirsson, svo Ingunni Rut Sigurðardóttur, unnustu Andra og dóttur Sigurðar.

Í fyrsta símtali Andra við Sigurð sem fór fram laust eftir miðnætti þann 16. apríl 2024 ræðir Andri um að fá kortaupplýsingar og ætla þeir að sjást á morgun.

Hættu við fimmtudag og fóru á föstudag

Andri og Sigurður heyrast aftur ræða saman daginn eftir, þann 17. apríl 2024, á upptöku úr síma Andra. Þar segist Andri vera að fara heimsækja brotaþola og í seinni upptöku heyrist Andri aftur í símanum þar sem hann ræðir við Sigurð og segist vera á heimili brotaþolans. Þá heyrist í brotaþolanum sjálfum og talar Sigurður stuttlega við hann á ensku í gegnum síma Andra.

Andri segist vera búinn að útskýra fyrir manninum að þrátt fyrir að hann hafi greitt leiguna í seðlum þurfi hann að skila kvittun eða sýna fram á millifærslu.

Þó nokkrar upptökur eru spilaðar til viðbótar af samtölum Sigurðar og Andra dagana fyrir og á föstudeginum sjálfum þegar Andri á að hafa, samkvæmt ákærunni, með Halldóri Loga Siguðrssyni og Níelsi Pálmari Benediktssyni ruðst inn á heimili mannsins.

Á milli eru spiluð samtöl Andra við vin sinn þar sem hann segir að Ingunn hafi gleymt að greiða fyrir tryggingar og hún sé í hættu á því að lenda í fjárnámi þar sem tryggingaskuldin sé komin í lögheimtu.

Allt í lagi að fólk viti af „geðsjúka“ tengdasyningum

„Ég ætla að sækja hann með tveimur vinum mínum, fara með hann á Selfoss,“ sagði Andri í símann við Sigurð á fimmtudeginum. 

Í löngu samtali lýsir hann því að hann ætli að taka með sér einn sem sé tíu árum eldri en hann sjálfur og „gamall hundur“. Andri tók fram í símtalinu að hann sé ekki hálfviti sem beiti ofbeldi þegar þess þarf ekki.

„Maður þarf bara að passa sig á þessum útlendingum.“

Andir ítrekar við Sigurð að maðurinn sé bara að níðast á góðmennsku hans og að það sé ekki í lagi að tveir dagar séu liðnir frá því að hann ræddi við brotaþola síðast. Þá  lofar Andri að fara í síma brotaþolans og taka skjáskot af samskiptum hans við konu Sigurðar.

„Perraskapur í konunni þinni er ekki í boði.“

Hins vegar kemur í ljós í samtalinu að ekki sé víst að maðurinn eigi greiðslukort og því sé ekki hægt að fara með hann í hraðbanka og taka út pening heldur þurfi að fara til gjaldkera. Andri segist þurfa að fara í málið daginn eftir og ræðir við Sigurð um að útvega sér bíl þar sem hann viti hvernig lögreglan á Selfossi sé og vill ekki vekja athygli á sér.

Andri hughreystir þá Sigurð og segir að það megi alveg fréttast að „geðsjúki tengdasonurinn“ hafi verið sendur vegna skuldarinnar.

„Ekki fokking hreyfa þig“

Þá taka við þó nokkrar upptökur úr síma Andra þar sem hann ræðir við Ingunni á föstudag og laugardag. Fyrst hringir hann og segir að Halldór hafi gleymt gaffer-teipinu og því þurfi hún að finna það og koma með það út í bíl til þeirra. 

Þau tvö tala ítrekað saman í síma frá föstudagskvöldi fram til hádegis á laugardag.

„Ég er búinn að komast inn á fullt af accountum hjá honum, þetta er bara fokking erfitt,“ segir Andri við Ingunni í enu símtalinu.

Á ákveðnum tímapunkti vill Ingunni að Andri komi með brotaþola heim til þeirra og leiðbeinir hann henni að taka niður allar myndir svo maðurinn viti ekki hvar hann sé.

„Vertu kjurr, vertu kjurr, vertu kjurr, ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig,“ segir Andri á ensku í upphafi eins símtals.

Hann lýsir því í nokkrum símtölum að Halldór og Níels hafi reynt að fara með brotaþola út í bíl en hann sloppið og Andri elt hann og náð honum niður. Þá hafi bæði Halldór og Níels farið og skilið Andra einan eftir.

Var gráti nær og einn eftir

Eftir að Halldór og Níels eru farnir að sögn Andra hringir hann í Ingunni og segist ótta að einhver hafi séð til hans þegar brotaþolinn reyndi að flýja.

„Ég get ekki verið einn hérna,“ segir hann og þess á milli segir hann brotaþola að halda kjafti á ensku.

Andri hefur miklar áhyggjur af því að lögreglan sé að koma, bölvar Níelsi og sömuleiðis hughreystir Ingunni. Hann hljómar sjálfur líkt og hann sé að fara að gráta.

„Það má ekkert fara grenja fyrir framan hann,“ segir Andri við Ingunni.

Þá biður hann hana í öðru símtali að reyna að finna út hvort að lögreglunni hafi borist einhverjar ábendingar um hann án þess að vekja einhverja athygli.

Svik og svefn

„Ég var svikinn, ég get ekki sagt allt. Ég var svikinn,“ segir Andri í símann við Pétur Má Birgisson Mortensen, yngri bróður sinn, og biður hann sömuleiðis um að ná í Ingunni og koma með hana á heimili brotaþola.

Þá segist hann ekki vera stoltur af því sem hann sé búinn að gera og lýsir því sem ofbeldi og hrottaskap.

„Þetta átti ekki að fara svona, ég var með tvo stráka með mér og þeir voru kerlingar og þeir hlaupa í burtu.“

Pétur og Ingunn eiga að hafa ekið síðan til Andra sem sé á heimili brotaþola og hringjast þau á nokkrum sinnum á leiðinni. 

Um klukkan fimm að laugardagsmorgni reynir Andri að hringja símtöl sem er ekki svarað en heyrist í honum tala við brotaþolann.

„Ertu vakandi? Ertu vakandi? Já eða nei? Ég veit þú ert vakandi. Farðu að sofa, ekki gera neitt heimskulegt. Ég er að fylgjast með þér,“ segir Andir.

Einnig segist hann vera tilbúinn að skjóta svo að heilinn hans splundrist.

Rangt númer

Eitt símtal fer á milli Andra og félaga hans sem er ekki nefndur á nafn.

„Ég er í miðri frelsissviptingu,“ svarar Andri í símtalinu. Hann bætir við að hann sé brjálaður út í Halldór, fyrir að hafa farið.

Það líður svolítið á milli símtala en síðan er símtal þar sem Andri segist vera í hraðbanka og reynir að taka út pening á korti brotaþolans. PIN-númerið á kortinu reyndist hins vegar vera rangt og ræðir Andri við bæði Ingunni og Pétur sem hljóma eins og þau séu á heimili brotaþola. 

Þau segjast vera að ræða við hann til að fá rétt númer.

„Það er svo fokking mikið af myndavélum hérna, djöfull er þetta óþægilegt,“ segir Andri.

Að lokum hringir Pétur í Andra og segist vera búinn að komast að því hvernig eigi að græja auðkennisappið.

Reyndi að fá aðgang að rafrænum skilríkjum

Nokkrar upptökur eru spilaðar frá sunnudeginum. Andri sagði við Ingunni  að hann sé að segja pabba hennar frá öllu saman og setja hann inn í málið. 

Níels hringir þá í Andra og segist þurfa símann sinn. Andri segist reiður en að þeir séu fullorðnir menn og muni tala saman þegar málinu lýkur.

Á mánudagsmorgun hringir hann síðan í Pétur og segir að vinur brotaþola sé búinn að hringja nokkrum sinnum.

Þá voru spiluð símtöl Andra við annars vegar starfsmann Landsbankans og hins vegar Símans. Þar ræðir hann við báða starfsmenn og er að forvitnast um hvernig hann geti sett upp rafræn skilríki eða einhvers konar umboð fyrir brotaþola.

Svo blóðugur að hann hafi átt erfitt með að tannbursta sig

Á mánudeginum heyrist á uppökunum úr síma Andra að hann er að undirbúa flugferð brotaþola frá Keflavík til Parísar og þaðan til Möltu. 

Hann ræðir við Ingunni sem segir brotaþola svo blóðugan og að hann geti ekki tannburstað sig. 

Andri ræðir einnig við Pétur og segist vera að fara leggja inn á hann. Hins vegar varar hann Pétur við að fara ekki strax og eyða öllum peningnum. Þeir ræða einnig fyrirhugaða flugferð sem Andri sé að bóka.

Upptökurnar ná ekki yfir tímann þar sem brotaþolinn á að hafa farið um borð í flugvélina til Parísar og þar með úr landi. Daginn eftir ræddi Andri við Ingunni á ný í símanum og sló þá á léttari strengi en áður.

„Ég segi ógeðslega gott, mér líður ógeðslega vel. Ég er bara ég sjálfur aftur,“ segir hann

„Ég er kominn með nýtt gullrú á hendina og keðju í stíl.“

Á miðvikudag ræða þau saman um að taka bíl brotaþolans og undirbúa eigendaskipti.

„Hann er farinn úr landi og við getum notfært okkur fokking kennileitið hans, ástin mín,“ segir Andri við Ingunni í síma.

Viti hvað hann er að gera

Andri ræðir við ónefnda konu og segir þar að hann hafi ekkert talað við brotaþola þar til á miðvikudag. Þeir hafi rætt saman um leiguna en leyst úr því máli.

„Hún keypti það,“ segir Andri síðan í samtali við Sigurð.

„Núna verður lýst eftir honum því hann er týndur og það er verið að leita að honum. Svo kemur í ljós að hann sé farinn úr landi og þá er þetta búið.“

Hann hughreystir Sigurð, segir að hitinn sé kominn af þeim og hann viti alveg hvað hann sé að gera. Seinna meir tala þeir saman og heldur Andri áfram að hughreysta Sigurð og segir að hann og brotaþoli hafi skilið í góðu.

Brotaþolinn hafi sjálfur verið ánægður með að vera að fara úr landi og til dóttur sinnar. 

Síðustu upptökurnar varða bíl brotaþola sem Ingunn og Pétur eiga að fara að hafa náð í. Andri leiðbeinir þeim að aka bílnum á brott.

Andri segir Pétri að það sé vitleysi að reyna að brenna bílnum og heyrist í Pétri segja að hann vilji ekki láta skrá bílinn á sitt nafn.

Síðasta upptakan sem spiluð er fyrir dómara er tekin upp laust fyrir miðnætti þann 23. apríl 2024. Þar sitja Pétur og Andri saman og Ingunn segist vera á leiðinni til þeirra. 

Þann 12. maí 2024 var greint frá því að lögreglan væri að rannsaka málið og þrír karla og ein kona væru í gæsluvarðhaldi.

Andri Már mætti fyrir dómara eftir að upptökurnar voru spilaðar en vildi ekki gefa skýrslu né láta bera neitt undir sig.

#ekki #fokking #hreyfa #reykholtsmálinu #símaupptökur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262921948d/simaupptokur-ur-reykholtsmalinu-ekki-fokking-hreyfa-thig-eda-eg-mun-sparka-meira-i-thig-

📰 Aðrar fréttir

Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
Össur Skarphéðinsson, fyrrum ráðherra, segir Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus, vera forsprakka að einelti gagnvart Þorgerði Katrínu Gu...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 0
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til Íslands og kemur til ...
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skóla...
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
📅 01.10.2026 👁️ 0
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
Campaigners and Green Party leader Zack Polanski raise concerns about Rosebank's ties to an Israeli firm.
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
📅 01.10.2026 👁️ 0
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
Það eru nú einhverjir mestu umbrotatímar í seinni tíð og því tímabært að hefja samtal um hvernig samfélagi við viljum búa í. Þetta segir forseti Íslan...
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
📅 01.10.2026 👁️ 0
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
Vladimir Putin insists Moscow is "not threatening anyone" and merely responding to statements by Western leaders.
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en þar er haft eftir Þorgerði að það sé mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið „sem...
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
Landsréttur hefur dæmt ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur, sem birtust sem athugasemd á Facebook við deilingu á frétt af Vísir.is, 22. mars 2022, dauð...
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá því í færslu í morgun að útboð Kópavogsbæjar vegna byggingar stúku við Kórinn hefði verið dæm...
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
📅 01.10.2026 👁️ 1
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
Truflaður maður mætti í dýraathvarf í Sviss og krafðist þess að fá geit til þess að borða. Þegar hann fékk neitun vildi hann fá næði til þess að eðlas...
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
Borgarráð hefur samþykkt að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla í Reykjavík.Í fundargerð borgarráðs ...
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
Lítil hreyfing var á ráðningarferlinu í sumar en nú er búið að skipa hæfnisnefnd sem mun meta hæfi þeirra sex einstaklinga sem sóttu um stöðuna í júní...
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
📅 01.10.2026 👁️ 1
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og gert konu að greiða Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktum sem Ingó Veðurguð, miskabætur vegna ummæla sem ...
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
Samtal og samkennd er yfirskrift forvarnardagsins sem er í dag. Í ár er sjónum beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og öllum nemendum í ...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands. ...
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
Rúv greindi fyrst frá en Ari Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Nestaks, segir við Vísi að starfmaðurinn hafi fallið við vinnu á þriðjudagsmorgni o...
28 sagt upp hjá Klettabæ
📅 01.10.2026 👁️ 1
28 sagt upp hjá Klettabæ
28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp störfum í vikunni. Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum Klettabæjar, segir ...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif íslam í heiminum. Greinin ber y...
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
📅 01.10.2026 👁️ 1
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
Margir eru í losti eftir að hafa lesið um misheppnaða aftöku morðingjans Christu Pike í morgun. Eftir tvo skammta af banvænum lyfjum sló hjartað enn þ...
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maður sem ákærður er fyrir brot í nánu sambandi víki út dómsal á meðan brotaþoli ber vi...
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
The BBC's Stephanie Hegarty looks at why two attempts to execute the US convicted murderer by lethal injection failed.
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
The 27-year-old man was arrested in Westminster, London, counter-terror police say.
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
Þetta staðfestir Friðrik Theódórsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang og tækjabíll en var bei...
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
Reglugerðarbreytingin er sögð liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Markmi...
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
📅 01.10.2026 👁️ 1
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
Starfsmaður verktakafyrirtækisins Nestaks slasaðist alvarlega í vinnuslysi á þriðjudag. Starfsmaðurinn, sem er karl á fertugsaldri, var fluttur á sjúk...
Skriðuviðvörun til morguns
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skriðuviðvörun til morguns
„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni...
Fires break out at French schools as students protest nationwide
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fires break out at French schools as students protest nationwide
The French government holds a crisis meeting as demonstrations grow and become violent in places.
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
Útvarpsmenn í þættinum Sentralbordet på NRK á norksa ríkisútvarpinu hringja reglulega símaöt innanlands og til útlanda og hringdu nýverið símaat í ísl...
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
Rétt eins og á Íslandi eru blaðamenn ekki hlutlausir í Noregi. Sama gerist á Íslandi og það þarf ekki að leita langt til að finna slíka blaðamenn og f...
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa g...
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind Evr­ópski seðla­banka­stjór­inn Christ­ine Lag­ar­de seg­ir að evr­ópsk­ar fjár­mála­stofn­an­ir geti...
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
Þetta segir í skriflegu svari Jóhönnu M. Fleckenstein, framkvæmdastjóra Klettabæjar, við fyrirspurn fréttastofu. Hjá Klettabæ starfa yfir fimm hundruð...
Harmageddon | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
📅 01.10.2026 👁️ 0
Harmageddon | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
HarmageddonÍ Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem ...
Tennessee halts executions after death row inmate Christa Pike survives hers
📅 01.10.2026 👁️ 0
Tennessee halts executions after death row inmate Christa Pike survives hers
Christa Pike was transported to hospital after the failed attempts. Her condition remains unknown.
Tennessee halts executions after Christa Pike survives two lethal injection attempts
📅 01.10.2026 👁️ 1
Tennessee halts executions after Christa Pike survives two lethal injection attempts
Pike had been on death row since she was convicted in 1996 for the murder of Colleen Slemmer.
Christa Pike is in 'critical condition' after failed execution, her lawyers say
📅 01.10.2026 👁️ 0
Christa Pike is in 'critical condition' after failed execution, her lawyers say
Pike had been on death row since she was convicted in 1996 for the murder of Colleen Slemmer.
Biður stjórnvöld Tennessee að gera ekki aðra tilraun til að lífláta Pike
📅 01.10.2026 👁️ 0
Biður stjórnvöld Tennessee að gera ekki aðra tilraun til að lífláta Pike
Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, brýnir fyrir stjórnvöldum í Tennessee í Bandaríkjunum að reyna ekki aftur að taka Christu Pike af ...
Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm sinn þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Ummælin sem...
Flight attacker 'underwent Islamist radical indoctrination', Netanyahu says
📅 01.10.2026 👁️ 0
Flight attacker 'underwent Islamist radical indoctrination', Netanyahu says
Israel's prime minister says the pilot who tried to take over the Flydubai plane clearly intended to "down the plane".
Flydubai attacker 'underwent Islamist radical indoctrination', Netanyahu says
📅 01.10.2026 👁️ 0
Flydubai attacker 'underwent Islamist radical indoctrination', Netanyahu says
Israel's prime minister says the pilot who tried to take over the Flydubai plane clearly intended to "down the plane".
Man City appeal: Club will argue sponsorship deals came from Abu Dhabi government
📅 01.10.2026 👁️ 0
Man City appeal: Club will argue sponsorship deals came from Abu Dhabi government
Manchester City's appeal against the Premier League's verdict hinges on the club's claim that its sponsorship deals came from the Abu Dhabi government...
Man City: HMRC urged to scrutinise tax implications of verdict revealed by Premier League
📅 01.10.2026 👁️ 1
Man City: HMRC urged to scrutinise tax implications of verdict revealed by Premier League
The Treasury Committee, which is responsible for overseeing HMRC, has urged the body to scrutinise tax implications of the Manchester City verdict.
Ást og hatur á tímum óvissunnar – að sjá og heyra en alls ekki skilja
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ást og hatur á tímum óvissunnar – að sjá og heyra en alls ekki skilja
Ást og hatur á tímum óvissunnar – að sjá og heyra en alls ekki skilja Hvað ber að forð­ast og hverju að sækj­ast eft­ir þeg­ar blás­ið er í glæð­ur ha...
Krist­rún til­búin í að­gerðir - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Krist­rún til­búin í að­gerðir - Vísir
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 hefur hingað til verið gert ráð fyrir hækkunum á almennum krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana um 5,2 prós...
Andy Burnham 'completely out of touch' on Man City, Tories say
📅 01.10.2026 👁️ 0
Andy Burnham 'completely out of touch' on Man City, Tories say
The prime minister said he would be "really concerned" if the club's owners sell up after Premier League rule breaches.
Man City not 'above the rules', says No 10 after backlash to Burnham remarks
📅 01.10.2026 👁️ 1
Man City not 'above the rules', says No 10 after backlash to Burnham remarks
The prime minister said he would be "really concerned" if the club's owners sell up after Premier League rule breaches.
100 families face eviction in Costa Teguise
📅 01.10.2026 👁️ 0
100 families face eviction in Costa Teguise
Around 100 families living in an unfinished development in Costa Teguise, Lanzarote, could face eviction as the owner of the site moves forward with p...
Takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5%
📅 01.10.2026 👁️ 0
Takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5%
Krónutölugjöld og gjaldskrár ríkisins hækka um 2,5% um áramót en ekki um 5,2% eins og ráð var fyrir gert í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Þessu greindi ...