Stjórnvöld í Rússlandi bönnuðu í gær útflutning á dísilolíu. Þetta er gert vegna eldsneytisskorts sem rekja má til hertra árása Úkraínuhers á olíuinnviði.
Alexander Novak, varaforsætisráðherra Rússlands, greindi frá banninu á ríkisstjórnarfundi sem var sendur út í sjónvarpi. Með honum var Vladimír Pútín, forseti Rússlands. Novak sagði ljóst að staðan við bensínstöðvar hefði valdið almenningi áhyggjum. Bannið gildir til 31. júlí. Þá greindi ráðherrann frá því að til stæði að flytja inn eldsneyti frá útlöndum. Fram kemur í útlæga rússneska fjölmiðlinum The Moscow Times að eldsneyti hafi verið sent sjóleiðina frá Indlandi.
Úkraínumenn hafa gert árásir á allar helstu olíuhreinsistöðvar Rússlands síðustu mánuði. Í maí fór að bera á eldsneytiskrísu. Stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt árásirnar gerðar til þess að koma í veg fyrir að Rússland geti aflað fjár með olíuframleiðslu sem svo er nýtt til að knýja áfram stríðsreksturinn í Úkraínu.
Tyrkland og Brasilía voru helstu kaupendur á eldsneyti frá Rússlandi í júní. Útflutningur á dísilolíu og bensíni hafði minnkað um 39 prósent í júní miðað við mánuðinn á undan.
Mikill skortur er á eldsneyti víða um Rússland. Sums staðar eru bensínstöðvar tómar. Þar sem eitthvað er til hafa víða myndast langar raðir. Eldsneytisverð á landsvísu hefur hækkað um 11,6 prósent síðan í janúar.
Georgy Filimonov, héraðsstjóri Vologda, hvatti fólk í vikunni, í færslu á Telegram, til að halda ró sinni og reyna ekki að hamstra eldsneyti. Stuttu síðar skrifaði hann aðra færslu og sagði frá því að hann hefði orðið bensínlaus. Hann hefði því stoppað lögreglumann sem skutlaði honum á leiðarenda.
Filimonov skrifaði að það væru „ákveðnar takmarkanir“ á sölu eldsneytis til ökumanna. Hann hélt því einnig fram að eftirspurn hefði tvöfaldast á sama tíma og sendingar væru hættar að berast frá olíubirgðastöðvum. Hann hvatti fólk til að sýna hófsemi í notkun á eldsneyti til að koma í veg fyrir skort.
Takmarkanir hafa verið á sölu eldsneytis í Vologda-héraði síðan í lok júní. Hver og einn má aðeins kaupa 30 lítra í einu. Aðeins má setja eldsneytið beint á tank farartækja, ekki dæla því í brúsa.