Erlendur ríkisborgari, hinn 38 ára gamli Robert Tomasz Potrykus, hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness þann 27. ágúst. Robert var gefið að sök að hafa föstudaginn 31. júlí síðastliðinn staðið að innflutningi á 4.500 ml af amfetamínbasa í vökvaformi, með styrkleika 40-45%, ætluðum til söludreifingar hér á landi. Efnin flutti Robert til Íslands sem flugfarþegi til Keflavíkurflugvallar, en efnin voru falin í sex vínflöskum í farangri hans.
Robert fékk þungan dóm