Hundruð hollenskra bænda mættu á dráttarvélum til Den Bosch á föstudag til að mótmæla áformum yfirvalda um að afturkalla leyfi fimm alifuglabúa vegna losunar köfnunarefnis.
Búin eru með gild starfsleyfi og bændurnir segjast hafa farið að þeim reglum sem gilda um starfsemina. Yfirvöld telja hins vegar að losun frá búunum ógni nálægum Natura 2000-náttúruverndarsvæðum og að aðgerðir sem bændurnir hafa lagt til til að minnka losun séu ekki fullnægjandi.
Miles de agricultores holandeses bloquean las carreteras con tractores.
Protestan contra las políticas verdes que están arruinando al campo en toda Europa. pic.twitter.com/IoNk943l1C
— Alerta Global (@AlertaGlobal24H) August 16, 2026
„Fylgdu reglunum en eiga samt að loka“
Málið hefur vakið mikla reiði meðal hollenskra bænda. Farmers Defence Force, LTO Netherlands og fleiri bændasamtök segja fráleitt að hægt sé að svipta fyrirtæki leyfum eftir á þegar eigendurnir hafi starfað samkvæmt löglega útgefnum leyfum og fylgt öllum lögum og reglum.
Mótmælendur segja málið snúast um mun meira en fimm bú. Ef stjórnvöld geti afturkallað gild leyfi með þessum hætti sé erfitt fyrir bændur að vita hvaða tryggingu þeir hafi fyrir því að mega halda starfsemi sinni áfram til framtíðar.
Hollenskir bændur hafa undanfarin ár ítrekað mótmælt ströngum reglum yfirvalda. Stjórnvöld hafa sett sér markmið um stórfelldan samdrátt í losun frá landbúnaði í landinu og bændur óttast að afleiðingin verði fækkun búfjár og lokun fjölda býla.
🇳🇱🇪🇺 Dutch farmers rolled up with HUNDREDS of tractors to protest the government trying to shut down 5 poultry farms. Their excuse? “Too much nitrogen.”
These farms had valid permits and followed the rules… pic.twitter.com/8NHKxWQnXt
— Patriot Rod Steel (@PatriotRodSteeI) August 17, 2026
Hundruð dráttarvéla við stjórnsýsluhúsið
Langar raðir dráttarvéla héldu inn í Den Bosch þar sem bændur söfnuðust saman við stjórnsýsluhús héraðsins. Hollenskir fánar blöktu yfir mótmælunum og umferð raskaðist verulega og margir vegir lokuðst algerlega.
Stjónvöld segjast sig bundin af dómsúrskurðum og skyldum til að draga úr köfnunarefnisálagi á friðuð svæði. Eftir mótmælin var þó ákveðið að gera eina lokatilraun til viðræðna við bændurna áður en leyfin verða endanlega afturkölluð.
A new season of farmer protests begins in Europe
In the video, hundreds of Dutch farmers drove on tractors to the regional government building in Den Bosch to protest plans to revoke the permits of five poultry farms over nitrogen emissions.
The police tried to stop the… pic.twitter.com/C4GypqlX3D
— THE TRADESMAN 📈 (@The_Tradesman1) August 17, 2026