Menn af erlendu bergi brotnu réðust á starfsmann skoðunarstöðvar þegar í ljós kom að bíll þeirra var ekki í ökuhæfu ástandi. Mönnunum líkaði ekki niðurstaða skoðunarinnar og til handalögmála kom.
Málið er í rannsókn en þetta er meðal verkefna lögreglu eins og fram kemur í dagbók hennar frá klukkan fimm í morgun til klukkan fimm síðdegis.
Krakkar fundu lyfjapoka á leikvelli
Þá kemur fram að krakkar í Mosfellsbæ hafi fundið poka á leikvelli en í pokanum reyndust leynast lyf.
Í Kópavogi var tilkynnt um ógnandi aðila í strætisvagni og var honum vísað út af lögreglu. Annars staðar í bænum var tilkynnt um innbrot í heimahús.
Einn varð fyrir áverkum á fæti eftir hlaupahjólaslys í Hlíðunum og annar fyrir áverkum á höfði eftir að hafa dottið utandyra í Múlunum.
Eldur í geymslukassa gaskúts og heimilisofbeldi
Annars staðar í Múlunum kom upp eldur í geymslukassa upp við hús, sem hafði að geyma gaskút. Óverulegar skemmdir urðu en slökkvilið var kallað til og sá um vettvang.
Á Grafarholts- og Úlfarsárdalssvæðinu var tilkynnt um heimilisofbeldi og önnur tilkynning um heimilisofbeldi barst úr Mosfellsbæ.
Bíll hafnaði á tré í Garðabæ og var ökumaður færður á spítala til skoðunar. Annars staðar í Garðabæ var tilkynnt um þjófnað úr verslun.
Einnig var tilkynnt um þjófnað úr verslunum bæði í Árbæ og í miðborginni.

