Eftir að Ólafur Ragnar Grímsson varð óumdeildur andlegur leiðtogi sjálfstæðismanna og fleiri nei-sinna hafa margir furðað sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki lært meira af banvænu faðmlagi við sósíalista eftir að hafa verið burðarás í vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur í sjö ár með þeim afleiðingum að þeirri ríkisstjórn var hafnað í kosningum með meira afgerandi hætti en áður hefur sést á Íslandi. Vinstri stjórnin galt afhroð í kosningunum undir lok árs 2024.
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn í banvænu faðmlagi við Sósíalista – verður Ólafur Ragnar formaður flokksins?