Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru:
- Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar
- Jónas Þór Birgisson, oddviti Sjálfstæðisflokksins
- Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknarflokksins
- Svanfríður G. Bergvinsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar
- Sævar Óli Hjörvarsson, oddviti Miðflokksins
Ísafjarðarbær er stærsta sveitarfélag Vestfjarða með um 4 þúsund íbúa og jafnframt sautjánda stærsta sveitarfélagið á Íslandi. Þéttbýliskjarnar í sveitarfélaginu eru Flateyri, Hnífsdalur, Ísafjörður, Suðureyri og Þingeyri.
Umsjónarmenn eru Gréta Sigríður Einarsdóttir og Ólöf Rún Erlendsdóttir.