Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa undirritað nýjan málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og þar með myndað áframhaldandi meirihluta í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokkunum.
Jóna Árný Þórðardóttir verður endurráðin sem bæjarstjóri en hún hefur verið bæjarstjóri frá árinu 2023. Ragnar Sigurðsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð og Þuríður Lillý Sigurðardóttir oddviti Framsóknar.
Hafa flokkarnir stafað saman í meirihluta frá árinu 2024, en upp úr samstarfi Framsóknar og Fjarðalista slitnaði 2024 og myndaði Framsókn nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokknum í kjölfarið.
Byggja á sama grunni á kjörtímabilinu
Í sameiginlegri yfirlýsingu flokkanna kemur fram að á síðustu tveimur árum hafi tekist að ná mikilvægum árangri í rekstri sveitarfélagsins með aukinni fjárhagslegri festu, ábyrgari rekstri og markvissri uppbyggingu innviða og samfélagsverkefna. Flokkarnir telja mikilvægt að byggja áfram á þeim grunni á næsta kjörtímabili.
Verða helstu áherslumál meirihlutans á komandi kjörtímabili traustur rekstur sveitarfélagsins og lægri skattar, markviss atvinnuuppbygging og efling hafna og atvinnulífs ásamt öflugri uppbyggingu í íþrótta- og æskulýðsmálum.
Í málefnasamningnum er meðal annars lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu Mjóeyrarhafnar, framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Eskifirði, fjölgun leiguhúsnæðis, aukna þjónustu við eldri borgara, uppbyggingu innviða og áframhaldandi sókn í atvinnumálum.