Héraðssaksóknari hefur ákært mann í Reykjavík fyrir nauðgun en meint brot var framið á heimili mannsins árið 2023.
Samkvæmt ákæru hafði maðurinn samræði og önnur kynferðismök við konu án samþykkis hennar, meðal annars endaþarmsmök, á meðan hún lá sofandi í rúmi og gat ekki spornað við verknaðinum vegna svefndrunga.
Fyrir hönd konunnar er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð 3,5 milljónir króna.
Aðalmeðferð verður í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 4. júní næstkomandi. Þinghald er fyrir luktum dyrum.